Share.

    9 Comments

    1. Mér fannst alveg steikast við þetta, þegar skrifaði seinast undir leigusamning, að það var alveg séstaklega tekið framm að leigan gæti aldrei farið undir upphaflega verðið. Bara upp.

    2. SnowballUnity on

      Ok lookar eins og upphaf að svona semi normal leigumarkaði.

      Leiguverð mun samt líklega taka smá kipp upp fyrst, þegar allir leigusalar fara að setja inn 12 mánuði af áætlaðri verðbólgu inn strax núna.

    3. Byrjum nú á að banna alþingi að hækka gjöld ríkisins um meira en 2.5% á ári. Leyfum þeim að sýna þetta fordæmi sem þau arga á alla aðra að sýna.

    4. Johnny_bubblegum on

      Þetta mun búa til verðtryggingarójöfnuð á leigumarkaði.

      Leigusali sem fjármagnar sig með verðtryggðu láni mun setja álag ofan á leiguna því hann má ekki verðtryggja tekjur af eigninni en skuldin er verðtryggð.

      Hvað myndu þið setja hátt auka á leiguna ef þið væruð að gera nýjan samning í dag? Vitið þið hver verðbólgan verður eftir ár? Hún er 5,4% í dag en fyrir ári síðan var sagt hún yrði á svona 3% í dag og þá voru engar áhyggjur af Hormuz

      Eg held að þessi aukni stöðugleiki í leiguverði Komi með hærra leiguverði.

    5. Vá hvað það tók allt of langan tíma að bregðast við þessari vitleysu. Þetta hefði átt að vera bannað dagin eftir að fyrsta manneskjan reyndi að vísitölutryggja leiguna af því þetta er vont á nákvæmnlega sama máta og vertryggð húsnæðislán en fólk velur allavegna að taka þá af yfirlögðu ráði á meðan þessi verðbólguvaldandi aðgerð húsnæðiseigenda var neydd á fólk þar sem allir þurfa að búa einhverstaðar.

      Svakalegt hvað fyrri ríkisstjórnir eru búnar að leyfa sér mikið aðgerðarleysi þegar það kemur að efnahagsmálum sem snerta hvað flesta hérna á Íslandi – og sama fólk situr núna í stjórnarandstöðu er fyrir fólkinu sem ætlar að laga til eftir það á eins óheiðarlegan máta og ég hef nokkurntíman kynnst frá þingi.