Share.

    6 Comments

    1. Lítur mjog vel ut… pinu corny samt. Þekki ekki stúdíóið. Kem örugglega til með að horfa a þetta

    2. Afþví Angel koma nálægt þessu býst ég við að Reagan verði sýndur sem “kristilegur góður kall” þrátt fyrir að hafa verið uþb eins ömurlegur og hægt er að vera.

    3. Smá spes að þarna er geggjað cast , en svo alveg óreyndur leikstjóri og svo þetta kristilega framleiðslu fyrirtæki.

    4. Skemmtilegt að sjá Hjört Jóhann Jónsson halda á kjarnorkutöskunni þarna [0:49].

    5. Sögumyndir eru orðnar leiðinlegar og fjalla ekki um neitt.

      Það var myndin þar sem páfinn hitti næsta páfa og þeir spjölluðu saman. Mynd um gæja sem fann Tetris í Sovétríkjunum og kom leiknum á Gameboy. Mynd um BlackBerry. Mynd um einhvern veðurfræðing sem þarf að segja til um hvort Normandílendingin geti átt sér stað. Mynd um gæjann sem tók viðtöl við Göring… og svo mynd um fundinn á Höfða þar sem forseti Bandaríkjanna er með Alzheimer og hittir mann frá ríki sem lifir í sjálfsblekkingu.

      Síðan kemur mynd um gæjann sem lánaði Reagan frakkann sem hann gekk í á Íslandi en ekki láta þig halda að það sé endir kvikmyndanna heldur eftir það kemur út mynd um aðstoðarmann Hönnu Birnu.

      Síðan er auðvitað á leiðinni mynd um konuna sem fann uppá íslensku brauðtertunni.

      Síðan er jú íslenska kvikmyndaævisaga Tomma í Tommborgurum, séð frá augum eins gæjans sem vann fyrir hann.