
It’s great to listen to Örna Lára speak full-bloodedly for the government. How can you talk so much about nothing and know nothing about the subject. What a mess!!
https://www.visir.is/k/e5ff0602-aa4c-4417-8f8b-9349313d4f89-1776241659203
Posted by AsgeirGunnars

7 Comments
Ertu til í að gefa einhver haldbær dæmi með þessari yfirlýsingu? Það myndi hjálpa mér með að ákveða hvort ég ætli að hlusta á þetta.
Sem stendur þá gætir þú verið manneskjan sem veist ekkert um viðfangsefnið því Dunning-Kruger er víða – en ef þú leyfir þér að fullyrða eitthvað þá gæti ég nýtt mína þekkingu, og þínar fullyrðingar, til að skera út um hvort þetta sé uppbyggileg gagnrýni hjá þér eða bara upphrópanir um ekki neitt.
Þurfti að slökkva á þessu viðtali eftir örfáar mínútur. Þau hljóma eins og sölumenn fyrir tækni sem gerir ekki það sem hún er sögð eiga að gera og skilar ekki hagnaði fyrir neinn og mun líklega aldrei gera það.
Þoli ekki svona “vélmennin munu breyta okkur öllum í batterí” kjaftæði. Slakið á, þið hræðið gamla fólkið.
“Þetta minnir á í gamla daga þegar við vorum í skóla og kennararnir bönnuðu okkur að nota Google”
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir útskrifaðist úr Versló 1998, um svipað leiti og Google fór í loftið, sem mér sýnist að hafi verið 1997.
Á maður að trúa því að starfsfólk Versló hafi vitað hvað Google var á þeim tíma þegar Yahoo og Altavista voru helstu leitarvélarnar, og browserar frekar nýleg tækni?
[https://www.althingi.is/altext/cv/is/cv/Nanna_Margr%C3%A9t_Gunnlaugsd%C3%B3ttir/1383/?nfaerslunr=1383](https://www.althingi.is/altext/cv/is/cv/Nanna_Margr%C3%A9t_Gunnlaugsd%C3%B3ttir/1383/?nfaerslunr=1383)
Edit: “Kennararnir” stafsett vitlaust, og “er” breytt í “var”.
þar sem ~~tvær~~ þrjár gervigreindir koma saman, þar eru stórkostlegar framfarir
tl;dr?
Hvernig er hægt að tala svo lítið um ekki neitt og samt koma út eins og þú vitir ekkert um hvað er verið að tala? Hvað þykist þú vita um gervigreind?
Við sem erum í mannvirkjagerð upplifum þetta mjög oft og sérstaklega í kringum breytingar á byggingarreglugerð þar sem lögfræðingar og vinnuhópar innan ríkisins koma með tillögur af breytingum sem eru byggðar á algjöri rökleysu og oft þversagnir á milli blaðsíðna.
Nú síðast tilkynnti Inga Sæland breytingu á byggingarreglugerð að fella niður byggingarstjórann! setja það á skoðunarstofu í stað þess að herða regluramman og byrja svifta menn byggingarstjóraleyfum sem ekki standa sig.
Hvaða afleiðingar hafa það, þú ert að fara steypa einhverntíman í næstu viku en veist ekki alveg hvenær. Pantar þá úttekt á skoðunarstofu sem væri þá BSÍ eða Frumherji eða verkfræðistofa ef þau opna á þann möguleika. En þú ert ekki tilbúin á þeim tíma sem þú pantaðir svo þú seinkar úttekt en þá er næsti lausi tími eftir 4 daga. Þetta myndi seinka öllum verkum með tilheyrandi kostnaði og þar að auki á er framkvæmd keðja verkþátta og byggingarstjóri er daglega að skoða alla hlekki í keðjunni, skoðunarstofur þyrfti fyrir úttekt að fara til baka í keðjuna, skoða teikningar og finna út úttektina áður en þeir taka hana sem tekur tíma og verkfræðistofur og skoðunarstofur eru með sirka 25-30 þúsund í útseldan tíma.
byggingarkostnaður myndi rjúka upp úr öllu valdi og taka mun lengri tíma sem er þvert á loforð flokkana um að reyna finna leiðir til að lækka kostnað og byggja meira og hraðar.
Þar fyrir utan segir bara SI að þeir vita ekkert um þetta og heyrðu bara Ingu segja þetta í fréttum eins og aðrir Íslendingar.
Það er svo furðulegt að sjá aðila mynda lög og reglur um iðnað sem þau hafa aldrei unnið í og hafa enga reynslu til að byggja lög og reglurnar á.