Share.

    7 Comments

    1. Þegar manneskjan sjálf er alveg óverjandi þá er samt alltaf hægt að minnast á það að viðkomandi á börn, svona ef þú vilt draga framm smá samúð.

    2. Held að börnin hans séu betur sett, svona fyrst hann hefur það í sér að berja aldraðan heilabilaðan mann nánast til dauða og skilja hann eftir ósjálfbjarga, á nærbuxunum, á víðavangi.

    3. Temporary_Life_1897 on

      Hann henti bæði konunni sinni og börnunum út áður en hann drap mann

    4. Equivalent_Day_4078 on

      Skotheld röksemdafærsla. Ef þú átt barn þá ertu stikkfrí með að brjóta lögin.

    5. TheLonleyMane on

      Mér finnst furðulegt hvað fólk er að bera sig á bakvið neyslu sem eitthvurslags þvott. Ég er sjálfur óvirkur fíkill og ég gerði allskonar heimskulegt og ólöglegt, en aldrei neitt sem nálgast skipulagt ofbeldi. Ég eindfaldlega hef það ekki í mér. Eins og maðurinn sem á að hafa misnotað barn vina sinna í Hafnarfirði sagðist vera nýfallinn og í blackouti?? Og hann neitaði líka sök, sem gengur ekki upp. Það er eins og fólk fatti ekki að það ber sjálft ábyrgð á því í hvaða ástandi það er.

    6. RaymondBeaumont on

      “Hann sagðist hafa verið vakandi um 20 sólarhringa umrædda kvöldið”

      Næstum tvöfalt heimsmet!

      Mjög áreiðanlegur vitnisburður hjá þessum manni.

      “lýsti því að hann hefði slegið Hjörleif tvisvar sinnum með handarbakinu, en að öðru leyti hefði hann ekki beitt hann beinu ofbeldi framan af. Hann viðurkennir hins vegar að hafa handleggsbrotið Hjörleif einnig. ”

      Er þessi maður enn á eiturlyfjum? “Sló hann bara létt, jújú, braut handlegginn hans, en halló, ég börn hérna!”

    7. Ekki heldur börnin hans Hjörleifs, eða afabörnin hans að eiga afa.

      Hvílíkur fórnarlamba leikur eftir að vera einn þekktasti afbrotamaður landsins.