I don’t know about you guys, sounds like a hot take

    but when a person is banned from school proms and it’s been an open secret about how much of a sleazebag they are i’d step back too rethink what i did wrong instead of whining on podcasts

    https://www.visir.is/g/20262871921d/ingo-vedurgud-hefur-fengid-meira-en-nog?fbclid=IwZnRzaARUMuBleHRuA2FlbQIxMQBzcnRjBmFwcF9pZAo2NjI4NTY4Mzc5AAEe0W4edrDsI4tm5HX7kDZLWjcI2qwihbZ-e-Y8ptS2B06Xuh2pb1xLuL_OxY8_aem_WJRfvJfaYeBVVSgmObQBCA

    Posted by Personal_Reward_60

    Share.

    20 Comments

    1. Getur Ingó ekki bara spilað í skólum í Rússlandi og látið Íslensk börn í friði?

    2. ScrotumScrapings on

      Væla í podcöstum ferillinn er margfalt lengri en tónlistarferillinn hjá honum. Hann var vinsæll í tíu mínútur árið 2009. Það er margt fullorðið fólk sem þekkir hann ekki af neinu öðru en sjálfsvorkun og röfli í sveittum viðtölum.

    3. Equivalent_Day_4078 on

      Tveir valkostir. Annað hvort er þetta landlægt samsæri milli framhaldsskóla út á landi og ungu stelpurnar sem vöruðu hverja aðra við honum eru að taka þátt í samsærinu. Eða… Ingó er sketchy.

    4. Það háir honum rosalega í öll skipti sem hann fer í viðtöl að ræða þessi mál að þá er honum að því virðist líkamlega ómögulegt að sýna neina auðmýkt eða alvöru eftirsjá, en talar þeim mun meira um hvað allir séu vondir við hann og að það séu hans mannréttindi að fá að vera skemmtikraftur. Að fara til podkastara sem er 100% á hans bandi og svo sjálfur með kynferðsbrotasögu á bakinu er svo aldrei að fara að hjálpa.

      Ef hann vill einhverntíma eiga séns á að koma til baka þá þarf hann að mæta í einlægt viðtal við einhverja virta fjölmiðlamanneskju og tala af heiðarleika.

      Það eiga nefnilega allir skilið anann séns, en þeir þurfa sjálfir að taka fyrsta skrefið.

    5. Alltaf nóg pláss fyrir akkúrat þennan pappakassa í öllum einkareknum fjölmiðlum. Alveg hreint ótrúlegt – ekki eins og hann sé eini íslendingurinn sem glamri á gítar. Samt kvartar hann líka yfir því að fá aldrei að koma sinni hlið að í fjölmiðlum. Ég hef bókstaflega bara heyrt fjölmiðla fjalla um hans hlið í næstum áratug núna.

      Eina sem ég veit um brotin hans koma frá þeirri vitneskju að hann er á bannlistum hjá sumum stofnunum, og að hann er alltaf að tala um hvað það er ósanngjarnt og að hann skilji alls ekki hvernig þetta átti sér stað. Það er merki um manneskju sem hefur gengið fram af einhverju fólki á sama tíma og hún opinberar aftur og aftur að hún viðurkenni það ekki.

      Það er allt sem ég þarf til að gera upp hug minn um manneskju sem annars skiptir mig engu máli. Manneskju sem í alvörunni þarf ekki svona mikið pláss í fjölmiðlum – en fær það samt – af því hún skiptir samfélagið sjálft engu máli. Trúbador hefur ekkert mikilvægi fyrir hinn almenna íslending umfram eitthvað menningrastríðáhugamál þeirra.

    6. Johnny_bubblegum on

      Segist vera alsaklaus af öllum ásökunum í áratug, allt lygar og bull.

      Kvartar svo yfir því að það eigi að halda yfir honum einhverju sem hann gerði fyrir löngu og var ungur maður bara 21. Árs, hafi ekki hagað sér fullkomlega og geti sko viðurkennt eigin mistök í lífinu.

      En hefur aldrei nokkruntímann viðurkennt að hafa gert neitt rangt þegar kemur að þessum ásökunum…

      Kvartar svo við frosta i einkaviðtali að hann fái ekki pláss á rúv til þess að útskýra málið á sínum tíma, útskýrði hann málið i þessu langa viðtali við frosta? Ekki hef ég áhuga á þvi að hlusta á frosta þannig ég veit ekki en hann hefur fengið næg tækifæri til að tjá sig…

    7. Systir mín er fertug og var í menntaskóla þegar hún var vöruð við þessum gaur. Ég þekki tvær konur sem lentu í kynferðislegri áreitni frá honum á unglingsaldri.

      Ég held djóklaust að meirihluti Íslendinga fæddir ca 1985-1995 þekki einhverja stelpu sem hefur lent í áreitni eða ofbeldi frá þessum gaur.

    8. teacuptrooper on

      Af hverju heldur þessi maður að það sé réttur hans að fá að koma fram? Og þar af leiðandi brot á hans réttindum að staðið sé i vegi fyrir því?

    9. ScunthorpePenistone on

      Ég man að maður var farinn að heyra sögur af honum að reyna við 14-16 ára stelpur alveg strax 2008 þegar Bahama var nýtt.

      Var mjög hissa hve mikið af fólki kom af fjöllum í Metoo þegar hjá flestum sem ég þekkti var Ingó fyrst og fremst perri og svo tónlistarmaður alveg frá upphafi 

    10. Separate-Movie7896 on

      Þegar sögurnar byrja þegar hann var verslunastjóri í 10/11 uppur aldarmótunum og halda áfram i yfir 2 áratugi þá er bara best fyrir þig að halda kjafti og kannski bara flytja erlendis ef þú getur ekki sætt þig við að þú sért þjóðþekkt ógeð útfrá eigin gjörðum

    11. Átti samtal við einstakling um þetta, ég fór nefnilega í veislu sem hann var trúbador..

      Ettir veisluna nefndi ég að þessi maður var trúbador, og ég skil ekki afhverju fólk er enn að bóka hann, og fékk svarið “æji þetta er gengið svo langt, hvað heldurðu að maður var ekki að smjaðra við tónlistarmenn þegar maður var sjálf 16 ára! það er verið að gera svo mikin úlfalda úr mýflugu þarna!! það á ekki að hálshöggva manninn því stelpur voru að smjaðra við hann” Ég var eiginlega orðlaus.

      …aaaaallt í lagi þá. Alveg sama þó “þessar stelpur byrjuðu” (hvort sem þær gerðu það eða ekki, ég þekki það ekki) þá er hann fullorðinn einstaklingur og á að vita betur. Ég vorkenni ekki þessum manni.

    12. Only-Risk6088 on

      Ég hafði aldrei heyrt neitt fyrr en hann varð me-too-aður. En ég hef sem betur fer aldrei verið hrifinn af tónlistinni hans. Ég hef aldrei hlustað á tónlistina hans sjálfviljugur og hefði þar af leiðandi aldrei gefið honum tækifæri t.d. að koma fram á árshátíð. Ég var því farinn að slaufa honum áður en ég frétti af perraskap, ætli það sé ekki líka nóg af fólki sem nennir ekki tónlistinni hans?

    13. Hann er að væla um þetta í fjölmiðlum af því að hann er að græða á athyglinni sem hann fær frá því að mála sig sem fórnarlamb útilokunarmenningu.

    14. Getur verið að fólk sé ekki að bóka þig því þú ert hreinlega ekkert sérstakur tónlistarmaður?

    15. lastavailableuserr on

      Í hvert skipti sem ég sé hann í fjölmiðlum man ég aftur hvað hann er *meint* mikið kríp. Held það væri betra fyrir hann að þegja smá

    16. Ég vona að Ingó veðurguð finni styrkinn innra með sér til þess að fyrirgefa fólkinu sem hann upplifir að sé að ofsækja sig.

    17. Ingó hefur verið þekktur fyrir svona hegðun gagnvart ungum stelpum á grunnskólaaldri frá því að ég var í grunnskóla fyrir 17 árum.

    18. Ég hef fyrir löngu fengið nóg af Ingó, það hlítur að hafa sama vegi og að hann hafi fengið nóg af öðrum eða hvað?