Share.

    5 Comments

    1. þann 22. mars 2026:

      >Grunur er um brot gegn barni á leikskólanum Krakkakoti í Garðabæ. Málið er til rannsóknar hjá Barnavernd Garðabæjar. Fundað var með foreldrum barna á leikskólanum í morgun.

      þann 18. mars 2026:

      >Starfsmaður leikskóla á Akranesi sætir rannsókn lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Fundað var með foreldrum barna á leikskólanum í gær. Lögreglan á Vesturlandi segir rannsókn málsins í algjörum forgangi.

      þann 3. október 2025:

      >Starfsmaður á leikskólanum Brákarborg er grunaður um kynferðisbrot gegn barni. Lögregla rannsakar málið en foreldrar voru ekki upplýstir um rannsóknina fyrr en eftir að málið rataði í fjölmiðla. Foreldrar hafa verið boðaðir á fund með lögreglu.

      þann 15. ágúst 2025:

      >Rúmlega tvítugur karlmaður var á þriðjudaginn handtekinn af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu grunaður um kynferðisbrot gegn ungu barni. Rannsókn málsins sögð er á frumstigi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er hinn grunaði leikskólastarfsmaður á leikskólanum Múlaborg í Ármúla

    2. Þarf að fara að hætta að ráða karlmenn á leikskóla?

      Alltof mörg mál komin upp á þessu ári, get ímyndað mér að þau séu enn fleiri sem komast ekki upp

    3. One-Acanthisitta-210 on

      Ég skil þetta ekki og finnst hræðilegt að öll þessi mál séu að koma upp.

      Sá umræðu á samfélagsmiðlum um að svona mál hafi líka komið upp á Flúðum nýlega. Vonandi ekki. Þetta er allt of mikið.

      Sá sem handtekinn var á Akranesi var ráðinn fyrir mánuði síðan. Hann beið greinilega ekki boðanna.

      Ég velti fyrir mér hvort að margir af þeim grunuðu, ef einhver þeirra, voru menntaðir leikskólakennarar.

    4. Woodpecker-Visible on

      Mun meira af perrakvennsum en fólki grunar. Oft bara meira litið framhjá því held ég, koma með útskýringar sem strax eru tekin góð og gild og ekkert pælt í því meira. Örugglega lýjandi samt fyrir þessa karla sem sinna þessu starfi af heilindum að það séu alltaf auka augu á þér þó þú sért ekki að gera neitt.

    5. Sé fyrir mér lausn á þessu vandamáli. En að greiða fólki í umönnunarstörfum fyrir börnin mannsæmandi laun er óraunhæft á skerinu.