Share.

    6 Comments

    1. “Ef tilvonandi borgarfulltrúar ætla að leysa umtalaðan bílastæðavanda miðbæjarins með því að endurheimta 18 stæði, þá er ég ekki bjartsýnn á þeirra lausnir við stærri verkefnum borgarinnar.”

      Fyrir utan það hvað það er hlægilegt og hjákátlegt að gera jafn mikið mál úr einhverjum 18 bílastæðum eins og sumir hafa gert, þá er þetta náttúrulega algjörlega metnaðarlaus tillaga ef þú heldur í alvörunni að það sé svakaleg vöntun á bílastæðum í miðbænum.

      Ég er mikill fylgismaður markaðarlausna á flestum vandamálum og finnst því gráupplagt að borgin bjóði einfaldlega út uppbyggingu og rekstur nýs bílastæðahúss í miðbænum. Ef það er raunveruleg vöntun á bílastæðum þá munu einhverjir framtaksamir aðilar sjá gott til glóðarinnar og taka útboðinu fagnandi. Og ef enginn býður sig fram þá eru það einfaldlega skýr skilaboð frá markaðinum að hann telur þörfina á fleiri bílastæðum ekki brýna og þá vitum við það.

      Þeir sem gráta hástöfum yfir þessum meinta skorti bílastæða gefa sig flestir út fyrir að hægri menn og markaðsþenkjandi svo ég vænti þess að þeir taki þessari skynsamlegu og hægri sinnuðu nálgun á málinu fagnandi. Það myndi hægri maðurinn ég allavega gera.

      Sjálfur tel ég litlar líkur á að nokkur maður myndi vilja setja peninga í slíkt verkefni, enda er enginn hörgull á bílastæðum í miðbænum og því væri verkefnið ólíklegt til að vera arðbært, en hver veit, mögulega hef ég rangt fyrir mér og húsið yrði reist. Það er fegurðin við markaðinn, við höfum öll alls konar hugmyndir og skoðanir um hvað gæti og gæti ekki gerst, en markaðurinn er einstaklega skilvirkur í að leiða fram raunverulegar niðurstöður í stað innantómra getgáta.

    2. Á erfitt með að skilja hans sjónarmið

      – Fyrrum formaður samtaka um bíllausan lífstíl

      – Leigubílstjóri

      Sem hefur hag af því að draga úr bílaumferð svo að hann komist betur leiðar sinnar, sem hagnast á að fólk noti ekki bíl (og taki þ.a.l leigubíl), en samt vill hann fleiri stæði en bara á stöðum sem hentar.. hverjum?

      Hvað stendur hann eiginlega fyrir?

      Edit: Eitt jákvætt við svona pólitík er að þetta er ekki lýðskrum. Hann bendir á vandamál, og kemur með tillögur að lausnum sem eru raunhæfar.

      Átta mig bara ekki hvar hans hagsmunir liggja

      Edit 2: Hann sleppir að minnast á að hann stofnaði Hopp og var framkvæmdastjóri þess þar til í fyrra. Ennþá fleiri hagsmunaárekstrar

    3. Ég átta mig ekki á þessu væli um bílastæði í miðbænum. Það er fullt af bílastæðahúsum sem eru með nóg af bílastæðum. Þessi bílastæðahús eru vel dreifð um miðbæinn og þú lendir aldrei í að þurfa að labba lengi. Ég lendi aldrei nokkurntíman í neinu veseni.

      Þetta er algerlega fabúlerað vandamál sem er bara eitthvað meme hjá bílaelskandi íhaldsmönnum sem fara aldrei niðrí miðbæ hvort eð er.

    4. Mér finnst bara svo skrítið að blaðamenn og þeir sem eru að bjóða sig fram gegn þeim skuli ekki nýta þær tölur og staðreyndir sem eru til nú þegar.

      Gerið cringe TikTok sem sýna að það eru nóg bílastæði. Sýnið að gangandi umferð í miðbænum hefur aldrei verið meiri í sögu landsins. Svo á að benda á að ef að nokkur bílastæði í miðbænum eru stærstu mál hægri flokkanna þá höfum við það þokkalega gott.