Need to create the conditions that people do not turn to drugs to numb themselves

    https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-04-15-tharf-ad-skapa-thaer-adstaedur-ad-folk-leiti-ekki-i-eiturlyf-til-ad-deyfa-sig-472893

    Posted by Lafi90_

    Share.

    3 Comments

    1. Nú skil ég. Það er m.a. út af fólki eins og honum Guðmundi sem tala langlíklegast gegn afglæpavæðingu á neysluskömmtum vegna þess að hann er líklega fullvissaður um að hún myndi hafa meiri slæm áhrif en góð.

      Ég væri lítið hissa ef hann vildi ekki enn harðari dóma fyrir fíkniefnamisferli og brot, þó svo að það gangi algjörlega gegn norræna refsikerfinu.

      Edit svo það fari ekki á milli mála; Ég veit að hann meinar vel, karlinn, enda erfiður hópur sem hann er að díla við. Ég bara hinsvegar sé það ekki að harðari lög og mögulega meiri, harðari refsingar fyrir þá sem eru að koma með efnin sé neitt einasta form lausnar. Lausnin byrjar á skaðaminnkun. Skaðaminnun byrjar á því að afglæpavæða svo við getum farið að hætta hringrásinni að gera viðkvæmustu hópa samfélagsins að glæpamönnum.

    2. Okei já, er ekki vandamálið að fólk hefur bara ekki leið til að halda áfram vegferð sinni? Það er alltof dýrt að kaupa húsnæði, setjast að og bara kúpla sig, maður er í eilífðri baráttu að halda sér á floti og persónulega finnst mér öll pólitík landsins hafa brugðist mér

    3. Það er alveg hægt að gera helling í þessum málum. En til þess verður að ráðast á vandann, en það er bara enginn áhugi á því. Það væri til dæmis hægt að tækla fátækt og aukna misskiptingu. En nei. Enginn til í svoleiðis. Ekki séns.