Share.

    9 Comments

    1. ScrotumScrapings on

      Fyndið að monta sig af því að hafa sett steypukumbalda ofan á Hjartagarðinn. Það hefur nú aldeilis lífgað upp á svæðið.

    2. Þar sem er búið að laga til og mála gömul hús er það fínt. En allstaðar sem hefur verið rifið og byggt ljóta læsa er ömurlegt.

    3. stalinoddsson on

      Heilt yfir klárlega gott en ég vil benda á hvað flestar fyrir myndirnar eru mun litríkari. Hvað er að frétta með öll gráu húsin nú til dags?

    4. originalnumlock on

      það er flott hjá honum að blanda saman myndum af einkaframkvæmdum og skipulagsbreytingum samanber brauð og co og hraðlestina. annars segir það sig sjálft að mest allt er fallegra en svæði í niðurníslu.

      á þessu tímabili þá hefur aðstaðan fyrir strætó versnað. dagur á líklega vini á fb sem finnst það menningarlegra að bíða í frosti við lækjargötuna og stjórnarráðið en að sitja inni á lækjartorgi.

      það varla sést neitt annað en ferðamenn á þessu svæði en það er hámark mannlífs og menningar að mati sumra

    5. Ég verð að viðurkenna að mér líður betur í hverfum sem eru að grotna niður. Illa farnir vegir, illa hirtar lóðir, arkitektúrmistök, allskonar litir og hús sem passa ekkert saman. Gamla Höfðahverfi, brothættar byggðir og miðbærinn fyrir 30 árum eru my spirit animals.

      Þrátt fyrir það þá er ég sammála Degi og flestum sem kommenta um að almennt eru lóðirnar og byggingarnar líklega betri eftir breytingu, t.d. upp á notagildi og mannvist, og eins hversu auðvelt er að ferðast á hjóli eða með barnavagn nálægt byggingunum.

    6. Finnst kofaskriflin á sumum *fyrir* myndunum mun frekar heillandi en steypan sem kemur í staðinn.

      Hefði bara betur mátt mála og standsetja gömlu íslensku kofana.

    7. Free-Success6628 on

      Miðborgin hefur alltaf verið forljót og er ennþá. Ljótar gráar byggingar og sóðaskapurinn út um allt, sígarettustubbar, hrákar,tómar plastflöskur og etcc.