Share.

    5 Comments

    1. > Fólk með yfir tvær milljónir í heimilistekjur á mánuði lítur ástandið bjartari augum en aðrir tekjuhópar.

      Hm. Hvað ætli það sé sem gæti valdið því?

    2. frjalsliberal on

      Enn og aftur þá sitjum við uppi með lélega ríkisstjórn.

      Nú stefnir allt í stagflation. Vonandi gerist það ekki, en það kæmi mér á óvart ef atvinnuleysi fer ekki yfir 10% og verðbólgan mun haldast há. Eina sem þetta fólk gerir er að hækka skatta og stækka ríkið (eða köllum það það sem það er: báknið) sbr. [https://vb.is/frettir/rikisstarfsmonnum-fjolgadi-um-1250-i-februar/](https://vb.is/frettir/rikisstarfsmonnum-fjolgadi-um-1250-i-februar/) o.s.frv.

      Síðan er fókusinn settur á að fara í staðnað samband. Óskiljanlegt.

    3. Johnny_bubblegum on

      Það er áhugavert hversu fáir segja stöðuna mjög góða sama hvaða ár er skoðað.

      Og efnahagsstaðan var metin betri í covid heldur en eftir Covid árin 2023-24. Ríkissjóður var rekinn með nokkur hundruð milljarða halla í Covid og seðlabankastjóri bókstaflega ráðlagði fólki að festa vexti. Sá hallarekstur var auðvitað út af Covid og neikvæðum áhrifum faraldsins og viðbragða okkar við honum á efnahagsstöðuna.

    4. FostudagsPitsa on

      Það er ótrúlegt hvað nýjasti frasinn hennar K Frost „við sögðum aldrei að þetta yrði auðvelt” er búin að heilaþvo marga í að samþykkja allan skítinn sem þessi ríkisstjórn gerir.

      Bæði Viðreisn og Samfylkingin voru með fullt af flottum loforðum fyrir kosningarnar sem maður var raunverulega spenntur að sjá, en þetta hefur mestmegnis allt verið svikið.

    5. Að koma okkur inn í ESB gæri verið það eina jákvæða sem þessi ríkisstjórn gerir.

      Fyrir utan þjóðaratkvæðagreiðsluna þá er varla hægt að ýminda sér verri frammistöðu ríkisstjórnar. Við fáum allavega 4 ára pásu frá spillingu Sjálfstæðisflokksins svo það er eitthvað. Reynsluleysið og hugmyndaleysið er hreint út sagt ótrúlegt.

      Að ná niður verðbólgu og þar með stýrivöxtum var 90% ástæðan fyrir að Samfylkingin fékk þennan ævintýralegan stuðning. En flokkurinn hefur BÓKSTAFLEGA EKKI GERT EINN SKAPAÐAN HLUT til að laga fákeppni/samráð/einokun á þessu kjörtímabili. Einu svör, útskýringar og plön flokksins er hægt eða summeriza með setningunni “þetta helst nú allt í hendur, er mjög flókið allt saman og verður ekki lagað á einu bretti” og sumur éta það upp.

      Ef einstaklingur er ráðinn í starf í ákveðnum tilgangi og gerir ekkert tengt þeim rilgangi í 2 ár þá er hann einfaldlega rekinn.

      Íslendingar eru of miklar skræfur til að mótmæla wvo Samfylkingunni verður ekki refsað fyrr en í næstu kosningum.

      Jafnvel þó þjóðin mun kjósa að ríkisstjórnin ætti að fara í aðildarviðræður þá yrði stjórnin sem sér um þær hægri stjórn sem líklega Miðflokkurinn situr í svo þær viðræður verða tilgangslausar.