,,Back to the past

    This leader’s name is Hildur Björnsdóttir and he still leads the Independence Party. However, she has completely adapted to her politics and has now become an advocate for the city to develop back into the countryside. The past has suddenly become the subject and the dream. More asphalt and transport for some has become the mantra.
    One of the representatives of the asphalt group that she protested a few years ago is now on the list led by Hildur, and in the manifesto of the Independence Party there is an emphasis on “revising Borgarlína from the ground up and implementing a new express train system on special lanes that does not constrict traffic” in accordance with the priorities of that group. Other priorities are almost all about destroying the transportation agreement of the capital area, but increasing the number of uneven intersections and parking lots."

    It is as if the XD policy document in the city was written in the 20th century and is directly “copy-pasted” from Reykjavík’s General Plan 1962-1983 or in colloquial terms the American car plan

    Hildur sem vildi breyta sveit í borg vill nú breyta borg í malbik



    Posted by numix90

    Share.

    10 Comments

    1. Er Borgarlínan ekki “hraðvagnakerfi á sérakreinum sem þrengir ekki að umferð”? Er semsagt málið að bara endurnefna Borgarlínuna og láta gott heita?

    2. Þjóðernis-allt-var-betra-í-gamladaga-rembingur sem á að höfða til sjalla sem líta hýru auga til miðflokksins.

    3. Johnny_bubblegum on

      Ég heyrði í vikunni það flytji 80 manns í bæinn í hverri viku og það bætist við 70 bílar í hverri viku sömuleiðis a svæðið.

      Á einu ári eru það 3.640 bílar og það er ekki pláss til þess að *plís bara ein akgrein í viðbót* á 10 ára fresti.

      Þetta minnir ofboðslega á baráttu íhaldsins gegn aðgerðum við loftslagsbreytingum. Humma af sér vandamálið þangað til það skellur á af fullum þunga og kostnaðurinn orðinn þrefaldur við að leysa það.

    4. Borgarlínuverkefnið var frábær hugmynd, sem samfó o.fl. gerðu að einhverjum trúarbrögðum og fóru svo með alveg út á tún. Þrengingar á stöðum þar sem er nóg pláss, þráhyggju fyrir miðjusetningu þar sem hún þarf ekki.

      Byrja á réttum enda. Skapa valmöguleika fyrir bíla fyrst – svo fækka bílum. Í staðinn eru umferðarteppur þar sem þær þurfa ekki að vera og allir brjálaðir!

      Samfylkingin þarf að jarðtengja sig og taka sér smá frí. Ég kýs Hildi og kó.

    5. Er ekki Borgarlínan þess háttar verkefni að það eru í raun engar líkur á að menn geti bakkað úr því úr þessu? En svona fínt að slá um sig með einhverjum frösum til þess að kaupa atkvæði fólks sem trúir þessu?

    6. No-Aside3650 on

      Las yfir stefnuskrá sjálfstæðisflokksins í samgöngumálum í borginni og annað eins prump hef ég ekki lesið.
      Það er þarna fullt af loforðum sem þau ætla augljóslega alls ekki að efna og ef þau efna þau að þá munu þau kosta borgina alveg þvílíka fjármuni.
      – Endurskoðun á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins – peningasóun og frestun
      – Stytta gjaldskyldutíma á bílastæðum í miðborginni svo ekki sé rukkað eftir 18 – skiptir þetta í alvörunni máli eða hljómar þetta bara næs?
      – Fjarlægja aðskotahluti úr bílastæðum í miðborg – þetta mun sennilega gleymast fyrst því að fólkið sem mun kjósa þau útaf þessu fer aldrei niður i miðbæ
      – Við ætlum að hafna fyrirhuguðu deiluskipulagi á suðurlandsbraut – held að þetta sé mjööög sterk lygi sem yrði ekkert af, ætlað til að veiða atkvæði karlpunga.
      – Við ætlum að vinda ofan af þrengingum á gatnamótum við Höfðabakka – nei það ætla þau ekki að gera, myndi allt fara í fokk þarna aftur.

      Svo er maaaargt fleira þarna sem mun svo bara gleymast á rosalega hentugan hátt ef þau fengju borgarstjórn. Þetta væri fast í nefndum öll 4 árin.

      En það besta, hitamálsatkvæðin: Við ætlum að endurskoða Borgarlínu frá grunni og innleiða nýtt hraðvagnakerfi á sérakreinum sem ekki þrengir að umferð. – þetta er á stefnuskránni eftir 4 ár, það verður sennilega búið að gera borgarlínuna (á suðurlandsbrautinni meira að segja haha!) og þá verður of seint að hætta við og þá koma aðrar lygar.

    7. uuu ég var að lesa fréttina aftur sorry, en er ég að skilja þetta rétt, Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík er kominn með einstakling á lista hjá sér sem var einn forsvarsmanna hóps sem barðist fyrir samgöngustefnu sem miðar að auknu malbiki og forgangi einkabílsins og nú birtist svipuð stefna í stefnuskrá flokksins? Til að umorða þett; Á framboðslista XD í Reykjavík er nú að finna aðila sem tengist hagsmunasamtökum sem hafa barist fyrir auknu malbiki, fjölgun mislægra gatnamóta og greiðara aðgengi fyrir einkabílinn. Þá er athygli vakin á því að þau vilja einnig selja Malbikunarstöðina á Höfða.

      Úr fréttinni: „Einn forsvarsmanna malbikshópsins sem hún(Hildur) andæfði með andköfum fyrir nokkrum árum er nú kominn á listann sem Hildur leiðir og í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins er áhersla á „að endurskoða Borgarlínu frá grunni og innleiða nýtt hraðvagnakerfi á sérakreinum sem ekki þrengir að umferð“ í samræmi við áherslur þess hóps. Aðrar áherslur snúast nær allar um að eyðileggja samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins en fjölga mislægum gatnamótum og bílastæðum.”

    8. Er fólk bara farið að pósta sínum eigin bergmálshelli hingað, ætli að það sé útaf því að þegar maður er ansi langt farinn inn í hellinum sínum að þá missir maður getuna til að aðgreina.

    9. Ein spurning. Hefur áður verið svona gígantískt afskipti af hálfu þingmanna stjórnmálaflokka í sveitastjórnarkosningum?

      Framkvæmdastjóri þingflokks xS
      Formaður flokksins xS
      Þingmaður flokks xS
      Fyrrum borgarstjóri xS

      Þarna er peningum lofað úr ríkissjóði án samráðs við aðra stjórnarflokka. Framkvæmdastjóri þingflokks með sína eigin bloggsíðu þar sem oft upplognum sögum og ásökunum er póstað. Formaður ræðst á bæjarstjóra annars sveitarfélags í 1. Maí ræðu þar sem sonur heilbrigðisráðherra er í oddvitasæti.

      Er þetta allt saman eðlilegt?

    10. Competitive_Switch97 on

      Admínur, nenniði ekki bara að banna þennan numix90 sem póstar bara samfó propaganda, heimildinni og þórð snæ? Það geta allir farið inn á þessar vefsíður sjálfir ef þeir vilja