Can someone explain to me what this signature list stands for, just because I have an IQ.
    I understand him, but my friend doesn’t.

    https://island.is/undirskriftalistar/7ae212bd-298a-411b-b790-93d33694e8d7?fbclid=IwdGRjcARl_Z5leHRuA2FlbQIxMQBzcnRjBmFwcF9pZAo2NjI4NTY4Mzc5AAEerF2DynI8a44EkX41zpBMzPglHJFcnjcXNK5YZQAqVMdiK_bFnIUIrRNwXaQ_aem_4ThyDU32E24JKn1NxNT1VA

    Posted by Careless_fuxk

    Share.

    11 Comments

    1. SalsaDraugur on

      Antivax liðið virðist vera á móti því að ríkið geti brugðist skjótar við nýjum veirum án þess að það sé þingað um það

    2. Þekki tvo sprautufíkla sem af einhverjum ástæðum hafa fundið tíma til að senda þennan undirskriftalista á alla sem þau hafa hitt á lífsleiðinni. Sem mér þykir skondið enda eru þau að sprauta sig sjálf með algerlega óþekktu rusli sem keypt er af einhverjum skúrkum.

    3. Fokk hvað það eru til margir heimskir Íslendingar. Til skammar. Frekasta lið sem ég þekki.

    4. Original-Mongoose866 on

      Get ég skrifað undir með nafni á lista sem er á móti þessum lista ég treysti læknum 100 sinnum betur fyrir heilsunni minni heldur stjórnmálamönnum það er einn stjórnmálamaður sem borðaði hrátt hakk!

      Í allri alvöru ef þú ert anti vaxer væri ekki bara fínt ef þú flyttir til Ameríku svo að þú getir verið með þínu fólki

    5. Byrjum á að segja að ég er mjög pro bólusetningar og vísindi almennt. Ég er ekki einn af þessum nötturum.

      Þessi lög gefa ráðherra virkilega víðtækar heimildir, m.a. til að *neyða* fólk í bólusetningar án samráðs við nokkurn mann. Svoleiðis ákvarðanir eru gífurlega þungbærar og þó það þyrfti ekki að neyða mig í bólusetningu búum við í frjálsu landi þar sem fólk verður að fá að gera það af fúsum og frjálsum vilja. Ef þær aðstæður koma upp að það *virkilega þarf* að neyða fólk í bólusetningar á það bara að fara fyrir Alþingi á þeim tíma.

      Það er óafsakanlegt að hafa svona heimildir skrifaðar í almenn lög, svo ég skrifaði undir þennan lista undir nafni.

    6. Þessi undirskrifarlisti stendur fyrir þörf vitgrannra og sjálfhverfra einstaklinga til að vera með mótþróa mótþróans vegna.

      Ef þú hefur einhverntíman séð barn öskra, gráta og fara að velta sér á gólfinu því það var að sveifla einhverju hættulegu eins og hnífi eða hamri og fullorðinn einstaklingur tók það af barninu til öryggis að þá hefur þú fengið innsýn inn í innri heim þessa fólks.

      Svona “ég, um mig, frá mér, til mín” hugsunarháttur þar sem fólki er sama um allt og alla í kringum sig svo lengi sem það upplifir ekki hina minnstu röskun í lífinu. Fólk sem nýtur góðs af aga allra hina í samfélaginu en telur sig ekki þurfa að leggja neitt fram sjálft, fólk sem myndi klífa kaðal og sparka honum svo niður með fólk danglandi í honum svo kaðalinn sé ekki fyrir fótunum á þeim.

      Er skemmtilegt samræmi milli [þessara greinar](https://attavitinn.is/heilsa/gedheilsa/andfelagsleg-personuleikaroskun/) um ASPD á Íslandi sem telur að 1,5% þjóðarinnar sé haldin því miðað við könnun frá 2009 og á því að um 6K einstaklingar hafa skrifað undir þetta sem er… 6000/400.000=0,015 = 1,5% >!Já ég veit að það er ekki tenging þarna á milli en þótti þessi tilviljun bara skondin.!<

      Ef ég virka pirraður á svona fólki þá er það vegna þess að ég er tiltölulega nýbúinn að fara í gegnum faraldur þar sem mest taugatrekkjandi hluti faraldursins var ekki veiran sjálf heldur fólkið sem dreyfði henni.