Share.

    4 Comments

    1. Nú þegar rannsóknarskýrsla hefur leitt í ljós að manndrápið var 100% ábyrgð þess sem ók yfir á rauðu, hver er refsingin?

      Er viðkomandi enn að keyra í umferðinni? Er ekki eðlilegt að það sé nokkra ára fangelsi fyrir manndráp af vítaverðu gáleysi?

    2. Maður ekur yfir á rauðu og yfir konu og drepur hana.

      Enn fréttamönnum finnst þetta tvennt ótengt, maður var bara að aka yfir á rauðu því alveg ótengt lést konan…

      Sama fyrir helgi ökumaður keyrði niður vegfaranda enn fréttamönnum fannst helst merkilegt að rúða bílsins var mikið skemmd þó vegfarandi væri nær dauða enn lífi.

      Hvenær hætta fréttamenn að vera alltaf að hlífa ökumönnum á kostnað allra annara?

    3. allsbernafnmedrettu on

      Rosaleg áhersla lögð á þennan bilaða lampa. Eins og þe sé bara kolniðamyrkur á götunni.

    4. Embarrassed_Tear888 on

      Ég ók þarna framhjá nokkrum mínútum eftir að þetta gerðist, sá blessuðu konuna liggja á götunni. Einhver vegfarandi stóð yfir henni og sjúkrabílar að beygja inn götuna. Hafði sjálfur ekki tök á því að stoppa enda hefði það getað búið til ennþá meiri slysahættu. Ég hugsa mjög oft um þessa konu og eftir að hafa keyrt þarna og gengið framhjá og yfir þessa gangbraut á hverjum degi í meira en 20 ár þá finnst mér það nánast kraftaverk að að þetta skuli hafa verið fyrsta banaslysið sem ég verð vitni af þarna.
      Óháð því hvernig þessu slysi bar að þá eru þessi ljós og svo gatnamótin við Reykjaveg eitthvað eitur fyrir ökumenn í borginni, fólk gjörsamlega tryllist þarna ef það þarf að stoppa.