Share.

    8 Comments

    1. Chespineapple on

      D + M með hreinan meirihluta er sennilega ekki það besta sem hefði getað gerst.

      Ég var ekki að fylgjast með herferðum þeirra. Hvað ætla þau eiginlega að gera nú þegar þau hafa þetta vald?

    2. Ekki mínar uppáhaldstölur en..

      Fólk hefur ekki allt verið yfir sig ánægt með stefnu fráfarandi meirihluta. Ég get vel skilið að meirihlutinn hafi átt á brattan að sækja hjá hinum “almenna íslending” af mýmörgum og oft ósamræmanlegum ástæðum.

      Ég er til að mynda ósáttur með skort á almenninlegri langtíma stefnu í húsnæðismálum – það eru engar óýrar íbúðir í boði lengur fyrir yngri kynslóðir sem eru því upp á foreldra, eða vel stæða maka, komin. Á sama tíma er fólk í Grafarvoginum ósátt með húsnæðisstefnuna því hún er að byggja á hverri einustu óbyggðu þúfu í bæjarfélaginu þeirra án samykkis þeirra. Óánægja með skort á húsnæði. Óánæegja með uppbyggingu húsnæðis. Tvær ósamræmanlegar skoðanir á stefnu en báðar með atkvæði.

      Það er bara í húsnæðismálum – það er nóg af öðrum erfiðum málaflokkum í borgarpólitík. Það er erfitt að vera við völd í langan tíma þar sem þú þarft að geðjast öllum nauðsynjum allra. Það er varla geranlegt, en í samfélagi sem er hópur einstaklinga þá er eðlilegt að fólk kjósi fyrst og fremst út frá sínum einstaklingsþörfum frekar en þörfum samfélagsins. Það hefur enga tengingu lengur við þá heild.

      Ég hef samt persónulega litla trú á því að Sjálfstæðisflokkurinn, eða Miðflokkurinn, séu lausnin í þessum málum. Ég byggi það á fyrri reynslu, og reynslu af þessari kosningarbaráttu – en ég er tilbúinn að hafa rangt fyrir mér. Ef að safmélagið okkar batnar eitthvað undir stjórn þeirra sem ég treysti ekki til að bæta það þá endum við uppi með betra samfélag – ó nei.

      Ég hafði svo sem heldur ekki trú á fráfarandi meirihluta eftir öll þessi ár – það var líka trúleysi byggt á fyrri reynslu. Ég er svo ekki þeirrar skoðunar að borgarar eigi ekki að skipta sér að stjórnmálum nema í kosningum svo að ef að allt fer á versta veg og kjósendur þeirra sem sitja við völd ætla að leyfa því að fara þangað án athugasemda – þá bara stundum við smá stjórnmálaþáttöku í gegnum mótmæli. Það er ekki svo slæmt að hinn almenni íslendingur láti stjórnmál sig varð eilítið meira af því stjórnmál skipta í raun miklu máli.

      En ég hef óneitanlega áhyggjur af því hvernig þjóðarsálin þróast ef að það eina sem nýr borgarmeirihluti hefur upp á að bjóða er bara meira af því sama, eða aðgerðarleysi með öðrum blæ. Það myndi bara vera olía á hvaða eld sem er að brenna – en ég ætla ekki að hafa fyrirfram áhyggjur af því. Ég hef alltaf tíma til að hafa áhyggjur seinna.

      Svo er líka alltaf mögulegt að Sjálfstæðisflokkurinn kjósi að nýta þetta sem tækifæri til að ýta sér aftur nær miðju og velji samstarf við Samfylkinguna og Viðreisn. Það kæmi mér mikið á óvart. Svo mikið á óvart að ég gæti litið aftur á þessar niðurstöður og brosað.

    3. Þá er spurningin, hvort fer Hildur með Miðflokk eða Framsókn+Viðreisn?

    4. No_Candidate_1727 on

      Ég kaus sjálfstæðisflokkinn. Ég hef aldrei kosið hann áður og kaus samfylkinguna til að mynda í síðustu alþingiskosningum.

      Borgarstjórn Reykjavíkur hefur ekki getað tæklað stóru mál borgarinnar síðastliðinn áratug. Jafnvel þó sum af þeim málum hafi verið tækluð í bæjarfélögum í kring. Það var eins og borgarstjórn væri ófær um að læra af öðrum.

      Stór hluti þeirra sem kaus sjálfstæðisflokkinn í kosningunum í ár hefur aldrei kosið hann áður og mun aldrei kjósa hann aftur. En það þurfti nauðsynlega breytingar í borginni.

    5. Nei whaaat r/Iceland ekki ánægt með þessar niðurstöður

      Litaðu mig fjólubláan