
"Then it is urgent that the government embarks on powerful marketing"
Why should the government go into marketing? Why doesn’t the tourism industry take care of it themselves?
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-24-ahugaleysi-stjornvalda-vandi-ferdamannaidnadarins-476330
Posted by jreykdal

3 Comments
Hvað með að leyfa innviðum að catch up áður en við förum í annað svona átak? Gekk ekkert svo glimrandi síðast með álaginu sem fylgið fyrir heilbrigðiskerfið, vegina etc. Byrjum á réttum stað núna. Metum hvað við þolum af ferðamönnum og bætum það sem þarf að bæta áður en við fjölgum ferðamönnum.
Hvernig ætlum við að efla ferðamannaiðnað þegar allt kostar viðbjóðslega mikið hérna? Fólk kýs bara að sleppa því að koma hér því öllu er ótrúlega okrað OG við erum við bullandi verðbólgu. Ekki allir eru með sama launaskrið og við og ferðamenn bara sleppa því að stoppa hér út af þessu.
Önnur ríki gera þetta fyrir sinn ferðaiðnað og þetta er góð fjárfesting á opinberu fé þar sem þú færð inn útlendinga sem eyða peningum hér.
En þessi iðnaður virðist vera í eigu leiðinlegasta og frekasta fólks landsins. Mér líkar næstum betur við Máa heldur en fólkið sem talar fyrir þennan iðnað. Botnlaus heimtufrekja í þeim… það á að styrkja þau til að byggja upp ferðamannastaði, styrkja gerð bílastæða, alls ekki hækka skatta, borga fyrir þau auglýsingar.
Munið þið þegar við áttum öll að sýna túristum gestrisni fyrir iðnaðinn? Endilega farið á gestgjafar.is og lærið hvers vegna þið eigið að hætta þessu tuði um iðnaðinn og hvernig þið eigið frekar að segja takk.
Jóhannes talsmaður ferðaþjónustunar var í viðtali um daginn að ræða þetta og gat ekki einu sinni viðurkennt að það að borga 1500kr fyrir að leggja á bílastæði út í rassgati væri peningaplokk. Þetta væri sko þjónusta, ekki eitthvað malarplan og það væri ekkert að því að greiða fyrir góða þjónustu og þetta eru innviðir því þarna eru upplýsingarnar á skiltum o.fl.
Mér verður óglatt í næstum hvert skipti sem ég les eða heyri orð einhvers úr þessum bransa og mig langar ekkert að hjálpa þeim.
Dæmin eru endalaus um peningaplokkið hjá þeim hvort sem það er sturlað verð fyrir að leggja við malarplan, samloku með skinku og pítusósu,heitt kakó sem kostar fáránlegar upphæðir eða söluaðila að segja upp herbergjum til að selja aftur af því það fattaði ekki hversu mikið væri hægt að hækka verðið þegar sólmyrkvinn verður og hverjum er um að kenna að ferðamönnum finnist ferðin hingað ekki þess virði?
Öllum nema þeim sjálfum…
Ef bíómyndin Matilda væri endurgerð á íslandi í dag þá væri pabbinn að skítamixa í ferðaþjónustunni.