En flugstjórar eru ólíkir flugumferðarstjórum að því leyti að hingað til hefur ríkt sátt um kjör þeirra. Það kom því flestum á óvart að frétta af klofningi innan félags flugstjóra og hér við hlið mér stendur Friðrik Oddsson, flugmaður og formaður Félags hafnfirskra flugmanna, skammstafað F.H.:
>Segðu mér, Friðrik. Nú kynni mörgum að þykja það skrýtið að innan stéttar sem stöðugt er á ferð og flugi skuli spretta upp sérstakt fagfélag innan eins ákveðins bæjarfélags.
>
>>Já, nei! Við erum ekki bara að tala um fagfélag. Við erum líka að tala um félag sem er stofnað til framtíðar í flugmálum.
>
>En hafnfirskir flugstjórar? Hvað hafa þeir fram yfir aðra? Nú hefði maður til dæmis ekki haldið að Hafnarfjörður væri það stórt byggðarlag að það hefði þörf fyrir sérstakar flugsamgöngur.
>
>>Ja, það mætti nú alveg athuga það.
>
>Athuga hvað?
>
>>Ég held að það sé kominn tími á sér-hafnfirskt flugfélag. Það yrði álitlegur kostur í samgöngum innanlands, til dæmis.
>
>Sér-hafnfirskt flugfélag?
>
>>Já. Heldurðu að það væri ekki munur á að geta flogið á milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur heldur en að þurfa að skrölta þetta í bíl?
>
>Það þyrfti að byggja flugstöð í Hafnarfirði…
>
>>Jú, það liggur nú í augum uppi.
>
>Maður þyrfti að kaupa sér flugmiða á flugvellinum, tékka inn farangurinn sinn, labba út í vél, spenna sætisólarnar, vélin þyrfti að búa sig undir flugtak, hún þyrfti að keyra síðan út á brautarenda og hefja sig til flugs.
>
>>🫡
>
>*Tíu sekúndna flugs* – til Reykjavíkur! Þá þyrfti maður að halda kyrru fyrir í sætum sínum þangað til vélin staðnæmdist fyrir utan flugstöðvarbygginguna, labba úr vélinni úti á Reykjavíkurflugvelli, inn á flugstöðina þar og bíða og bíða eftir farangrinum sínum!
>
>>Já. Það er nú einmitt það sem flug gengur út á.
>
>Já, allt tekur þetta mun lengri tíma heldur en að „skrölta þetta í bíl“ eins og þú orðaðir það.
>
>>Ó!
>
>Þar fyrir utan, þá er Reykjavíkurflugvöllur lengst úti í Skerjafirði en Hafnarfjarðarstrætó stoppar bæði í miðbænum og á Hlemmi.
>
>>Jú, jú.
>
>Auk þess sem það yrði miklu dýrara að fljúga!
>
>>Finnst þér þetta asnaleg hugmynd?
>
>JÁ! MÉR FINNST ÞAÐ!
>
>>Já, ég vissi að þetta mundi aldrei virka. Ég verð að fara að hætta að láta strákana spila svona með mig. Þetta gengur ekki.
Playergh on
mér finnst þetta nú bara ágætishugmynd. vonandi mun nýja bæjarstjórnin í hafnarfirði styrkja þetta frekar en borgarlínu!
2 Comments