Share.

    3 Comments

    1. InkAndAcorns on

      Kemur líklega engum á óvart

      Boðar ekki gott að Inga fer í veikindaleyfi á sama tíma og flokkur hennar berst fyrir lífi sínu

    2. StefanOrvarSigmundss on

      Þegar Flokkur fólksins kom fyrst fram var áherslan á öryrkja og aldraða en hann spilaði líka á ótta við flóttafólki, innflytjendum og jafnvel þreytu á ferðamönnum. Síðari áherslan linaðist eitthvað á sama tíma og Miðflokkurinn fór á fullt að innleiða repúblikana-orðræðu og samfélagsmiðlar og fleiri fjölmiðlar vestan hafs urðu áróðurstól íhaldsmanna. Íslendingar eru ekki eins ónæmir fyrir hræðsluáróðri og þjóðrembu og margir héldu og Flokkur fólksins getur líklega ekki keppt við Miðflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn í því.

      Gullfiskaminnið nær auðvitað ekki yfir neitt sem þessir flokkar til hægri gera. Allir búnir að gleyma Wintris-málinu, Klausturmálinu, hruninu og einkavinavæðingunni, leiðréttingunni sem fór mest til hina efnameiri og svo mætti lengi telja. Miðflokkurinn tók vel við sér í höfuðborginni og úti á landi, jafnvel þó þetta sé flokkur sem skilgreinir sig fyrst og fremst í andstöðu við hluti frekar en með von um eitthvað.