Share.

    7 Comments

    1. monsteradeliciosa11 on

      já ok, ef það er svo mikill afgangur að þarf að setja það í hundamat þá er komin tími til að banna veiðar.

      Ég myndi ekki gefa hundinum mínum hvalakjöt reglulega út af þungmálmamengun.

      Þungmálmamengun í sjávarmat er ekki mikið heilsuvandamál ef maturinn er borðaður einstöku sinnum.

      En með hundamat þá er hundurinn að borða það sama nokkrum sinnum á dag, dag eftir dag….

    2. Finnst ekki alveg skýrt hvort hann er að tala um aukaafurðir, sem væru aldrei notaðar til manneldis, eða kjötið sjálft? Get allavegna lofað þér því að ef þú kaupir Nauta ribeye útí búð þá fór partur af skepnunni í dýrafóður eða eitthvað slíkt. Í fréttinni er hann að leggja til lög sem segi

      *>„Heimilt er að nota dýraprótein sem unnin eru úr aukaafurðum lagardýra og sjávarspendýra sem fóður eða til fóðurgerðar fyrir öll dýr.“*

      Sem hljómar eins og hann meini aukaafurð. En neðar í fréttinni stendur

      >Hafa hvalveiðimenn í auknum mæli reynt að koma hvalkjöti að í framleiðslu dýrafóðurs, svo sem hundafóðurs, jafn vel þó að ekki fáist jafn gott verð fyrir það og fyrir kjöt til manneldis.

      Þarna er talað um kjöt? Alveg stór munur á hvort hann sé að tala um “afganga” sem fólki þykja óætir eða hrefnusteikina. Ekki erum við að veiða hvali bara í hundafóður?

    3. Ég efa það að hvalkjöts-hundamatur myndi seljast eitthvað einhversstaðar

    4. Ég er líka svona þráhyggjunörd svo ég skil þetta mynstur.

      Mínar þráhyggjur liggja í áttina að kerifs-högun og -hönnun, og ég get fengið útrás fyrir hana í gegnum bæði vinnunamína sem og tölvuleiki, þrautir, viss borðspil til að sjá til þess að ég brenni mér ekki í drasl á að vinna mér til hlítar.

      Þessi þráhyggja hans Kirstjáns er aðeins grimmlyndari því hún snýst um að drepa dýr að því virðist meira og meira vera að nákvæmnlega engri annari ástæðu en að vilja fá að drepa þau. Ég skil nauðsynina á því að breyta því í arðbæra afkomu en ég er ekki viss um að ríkið eigi að tryggja það að vissir iðnvegir séu arðbærir.

      Sérstaklega ekki fyrir fólk sem er þeirrar skoðunar að ríkið eigi ekki að tryggja aðgengi allra að opinberri þjónustu. Það er eitthvað “skrítið” við að vera á móti því að hjálpa öllum á prinsipp línum, en vilja svo alltaf fá hjálp sjálfur og þá eru prinsippin bara ekki til staðar lengur.

    5. Morvenn-Vahl on

      Kristján Loftsson. Fokkaðu þér og þína Moby Dick þráhyggju.

      Virðingarfyllst,
      Morvenn-Vahl

    6. Mér finnst ótrúlegt hversu margir Íslendingar (sem ég hitti amk) verja hvalveiðina. Það er nánást ógerningur að drepa þá við fyrstu tilraun, dýrin þjást og deyja hægfara dauðdaga. Skiptir það bara engu máli? Svo vitum við um hvali að þeir eru með tilfinningagreind og eru dæmi um hvali sem syrgja afkvæmi sín svo dögum/ vikum skiptir. Við þurfum ekki þessa iðn, Hvalur Ehf. hefur verið rekið með tapi og einu kaupendurnir eru Japanar, þar sem þetta er einmitt oft notað sem dýrafóður. Restin af heimsbyggðinni er á móti hvalveiðum, nema kannski norðmenn og færeyingar.