Share.

    4 Comments

    1. rockingthehouse on

      >„Ég kannast ekki við að það sé keppikefli nokkurs þingmanns á nokkrum tíma að stunda málþóf,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.

      svaf hann í gegnum alla þingfundi fyrir sumarfríið eða?

    2. Ég trúi því varla að ég sé að taka upp hanskann fyrir Höllu Tómasardóttur en þar sem henni tókst loksins að gera eitthvað mér að skapi þá skal ég sko gera það.

      Það kemur ekki á óvart að þingmenn í verstu stjórnarandstöðu í manna minnum séu oblivious, og í rauninni algjörlega lausir við alla sjálfsmeðvitund í sínum viðbrögðum.

      > „Ég kannast ekki við að það sé keppikefli nokkurs þingmanns á nokkrum tíma að stunda málþóf,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.

      Sigurður Ingi hlýtur þarna að vera viljandi að misskilja hvað Halla segir, en það er nú öllum ljóst að hún var ekki að meina það bókstaflega heldur augljóslega að vísa í það stjórnarandstaðan var grímulaust að keppast um að vera í sem mestu málþófi.

      > Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, segist telja að forseti eigi ekki að taka þátt í dægurþrasi stjórnmálanna.

      Og Sigga Andersen mætti nú líta í eigin barm og minna sjálfa sig á að löggjafarvaldið hefur fleiri hlutverk en bara það að standa í eilífu dægurþrasi. Í rauninni sé það heldur ekki hlutverk þess að standa í þessu dægurþrasi.

    3. Vissi að bændaflokkurinn væri lágkurulegur enn nýjum lægðum náð að ráðast að forsetanum við setningu þings frekar enn að taka orðin til sín.

      Nokkuð on brand fyrir Sigríði samt, midflokkurinn hefur aldrei kunnað að hlusta. 

    4. Johnny_bubblegum on

      Þau eru eins og tossarnir í bekknum. Annar kannast ekki við að hafa gert neitt, hinn tuðar yfir því hvað það er glatað að kennarinn sé að skipta sér af, þetta komi kennaranum ekkert við.

      Alveg gagnslaust fólk á þingi.