
Now someone with legal knowledge could comment on this. According to the news, the maximum penalty is 2 years in prison and has never been served, sentences are usually suspended. Now Logi wants to increase this to 6 years.
What does this mean for judges? Aren’t precedents usually always considered when sentencing? Does this change anything?
Btw – it seems that this is aimed at people who are distributing or selling access to content (eg English) and not those who are getting Fóstbræður from PB.
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-03-11-vill-haekka-hamarksrefsingu-fyrir-hofundalagabrot-469533
Posted by dkarason

5 Comments
home taping is killing the samfélag
Lagabreytingar geta raskað dómafordæmum. Sýnist refsiramminn hérna bara hækkaður fyrir hugverkastuld, sem væri í takt við aðrar þjóðir í kringum okkur. Við höfum ekki mikið þurft að hugsa um hluti eins og viðskiptanjósnir (e. corporate espionage) hér á landi, en þar sem íslensk hugverk verða í sífellu stærri hluti af efnahag landsins, t.d. eins og hugverk Kerecis sem er verið að kaupa á marga milljarða, fer að verða eðlilegt að jafna stuld á slíku til þjófnaðar (refsirammalega séð).
Þetta mun mjög ólíklega hafa áhrif á ákvörðun refsingar vegna annars konar brota á höfundarréttarlögum, s.s. ritstuld, vörumerkjasvik, ólögmæta eintakagerð o.s.frv.
Miðað við hvað dómar hérna geta verið tiltörulega vægir fyrir alvarleg brot þá er hlægilegt að það séu 6 ár fyrir höfundarréttarbrot. Núna nýlega var maður að fá tvö ár fyrir nauðgun.
Lög almennt trompa dómaframkvæmd og geta vel breytt henni.
Dómarar eiga það helst til að fylgja dómaframkvæmd þegar það kemur að slá til nýja dóma, en þeir gera það alltaf ásamt mati á hver lögin eru. Yfirlegt er reynt að túlka út frá stærra samhenginu: Hvað þykir vera eðlileg ákvörðun, Hvernig mismunandi lög virðast beina í átt að einhverjum lögvilja, o.s.fr.
Að refsinginn sé hækkuð gæti breytt menginu þannig að harðari dómar séu dæmdir, En ólíklegt er að það eitt og sér mundi gera mikið og líklegra er bara litið á það sem hærra þak fyrir einstaka alvarlegt tilvik. En hvernig lögskýringargögn lagabreytingana eru og hvernig önnur lög samhljóma við það gæti breytt dómaframkvæmd til að refsingar fyrir höfundarlagabrot verða harðari en áður.
Bougie gölturinn með puttann á púlsinum að venju
Ég get þó huggað mig við það þegar ég er orðinn gjaldþrota og heimilislaus eftir að leigufélögin rýja mig inn að skinni að Smáís lifir enn í hjörtum ríkisstjórnarinnar