Share.

    4 Comments

    1. abhishekrajchauhan on

      Ég er með smá veitingahús. Hver dagur er mjög erfiður með verðbólgunni 😔

    2. Enda er verð á olíu stór partur af kostnaðinum í matvæla-framleiðslu, geymslu og flutningum. Olía er reyndar mikilvægur partur af öllum flutningum til og frá Íslandi af temmilega augljósum ástæðum.

      Ég held að ballið sé rétt að byrja – ef Oman dettur inn í stríð Bandaríkjanna við Íran þá lokast siglingarleið út úr Rauðahafinu og Súez skurðurinn getur bara hleypt ákveðið mörgum, ákveðið stórum, flutningsskipum í gegn. Olía er notuð í bókstaflega allan nútíma iðnað – það er allt að fara að fara að hækka í verði nema eitthvað kraftaverk gerist.

      Slæmt að hafa ekki tekið á heimatilbúnum þáttum verðbólgunnar okkar núna á seinasta áratug eða svo áður en ytri aðstæður helltust yfir okkur. Við höfum enga stjórn yfir utanríkisstefnu Bandaríkjanna, og þau virðast ekki hafa neina stjórn á sér sjálf.