Good thing. The first thing we can do to change the conversation is to stop blaming ordinary workers every time inflation and interest rates rise. Nothing will change and no reconciliation will be achieved until that rhetoric is stopped.

    https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-03-30-segir-stoduna-alvarlega-og-kallar-eftir-samtali-um-nyja-thjodarsatt-471401

    Posted by Steinherji

    Share.

    4 Comments

    1. Elska að framkvæmdastjóri SA segir “og það **þarf** að vera traust til staðar um að fyrirtæki velti ekki út í verðlagið þeim takmörkuðu launahækkunum sem er svigrúm fyrir og samið hefur verið um nú þegar” – þá er engin alvara í þessum uppástungum þínum því þetta traust er að sjálfsögðu ekki til staðar.

      Ef þú ætlar að setjast af alvöru við borðið og byrja að tala um alvöru samtal og að ná einhverri sátt í þessu máli **sem framkvæmdastjóri SA** af hverju ertu ekki með neitt í höndunum?

      Þið getið einhliða samið ykkar á milli um að t.d. frysta verðlag í sex mánuði, tólf mánuði, hvað sem það nú er m.v. innkaupaverð og álagningu, eða hvaða útfærslu sem **þið** viljið bjóða upp á, og bera hana á borð í þessum viðræðum – en þess í stað er bara talað um að allir þurfi að treysta þeim sömu fyrirtækjum og hafa enga ástæðu til þess að láta þetta verða að veruleika? Sömu fyrirtækjum og *græða* á því að svíkjast til um þetta?

      Þvílíkt þvaður, veit ekki til hvers ég hlustaði á þetta. Hentu endilega bara tvem, þrem, fjórum, tólf, áttatíu áskorunum í viðbót á stjórnvöld með ekkert annað á boðstólum en “leggið öll vopn niður og treystið okkur”. Þvílíkur diplómati.

    2. generic_male0510 on

      Það væri kannski sniðugt ef samtök atvinnulífsins myndu sjálf taka af skarðið og byggja traust. En nei þetta er ekkert nema leið til þess að bæta hlut þeirra á kostnað vinnandi fólks.

    3. Voru einmitt ekki síðustu samningar um það að treysta SA? Lægri launahækkanir á móti því að allt myndi ekki allt velta út í verðlagið? Hmmmm oh já það var bullshit. Af hverju í fjandanum ætti einhver að treysta þessu rusli aftur?

      Hver einasta “þjóðarsátt” endar með launafólkið gerir allt meðan SA lofar einhverju. Sex mánuðum seinna og allt veltur út í verðlagið upp á nýtt. Það er engin að fara treysta SA eftir þessa síðustu samninga sem þeir héldu ekki uppi.