Reduce fuel consumption and ensure that the price reductions pay off immediately

    https://www.visir.is/g/20262867300d/laekka-vask-a-eldsneyti-og-sja-til-thess-ad-thad-skili-ser-strax-a-daelu?fbclid=IwY2xjawRFxvpleHRuA2FlbQIxMQBzcnRjBmFwcF9pZA80MDk5NjI2MjMwODU2MDkAAR6MpswKPCBDPnLBkpZ3aQPekA9E6eMMG1ASjFJcs0XscXxGlomyQVDo7wWl9Q_aem_ONfolaOj1XrSv_JdRmPtQw

    Posted by tastin

    Share.

    13 Comments

    1. AsgeirGunnars on

      Hvað með matvörur og þjónustu? Er það undir þessari regnhlíf eða er bara verið að leika sér með tölur? Miðað við markaðinn, þá sýnist mér að það er verið að setja plástur á svöðusár.

    2. tekkskenkur44 on

      Ok, þetta er tímabundið.

      Ég vill sjá innlenda framleiðslu á ammoníak fyrir Eimskip og Samskip. Koma skipaflota um algjörlega frá olíu. Innlenda framleiðslu á áburp aftur þannig við þurfum ekki að hafa áhyggjur af stríði í austur Evrópu og Persaflóa.

      Byggja hleðslu fyrir rafvörubíla og auðvelda kaup og rekstur á þeim fyrir verktaka.

      Komum að minnsta kosti vöruflutningi á matvælum úr olíu/dísel

    3. Ég er mjög spenntur fyrir hleðslusöðvaátakinu. Nú þarf bara einhver að byrja að flytja inn hræódýra kínverska rafbíla og þá erum við skrefinu nær orkusjálfstæði.

    4. Fyrst fella niður bensíngjöld og nú lækka VSK á eldsneyti.

      Þessi ríkisstjórn er meira pro-oil en Bandaríkin (meðaltal 18% skattur/gjöld) og Sádí Arabía (15% VSK).

      Það fyndnasta er samt að þetta sem ríkisstjórnin er að gera væri algjörlega ólöglegt innan ESB. ESB er með lágmarks bensíngjald og þessi VSK á eldsneyti er lægra en lægsti leyfði VSK í ESB (15%).

      Við færumst lengra og lengra frá aðlögun við ESB og ríkisstjórnin á algjörum villigötum.

    5. Þetta er ekki neinn sigur fyrir verkafólk og almenna borgara. Maður tekur hleðslustöðvum fagnandi, en þær verða eflaust þjónustaðar af eða í eigu einkaaðila. Og einkabransinn græðir jafn mikið ef ekki meir en við almennir borgarar á lækkun skatts á bensíni.

      Nýfrjálshyggju vatnsþynning. Takið eftir að hér er ekkert gert til að sporna við látlausri græðgi og ábyrgðaleysi einkaaðila sem velta öllu út í verðlagið, halda verðbólgu hárri og undirbúa sig að siga bæði SA og ríkissjóð á launafólk í komandi kjaradeilum sem þeir ollu. Það þarf allt að vera einhver miðjumoðs díll við einkabransa þegar kemur að ríkisáformum í stað þess að tækla stærstu vandana eins og húsnæðis- og matarverð sem er haldið í heljargripum einkaaðila.

      Að styrkja eftirlit með verði er til einskis ef það breytir engu að fyrirtæki séu tekin í því að okra á okkur. Það þarf refisingar á borð við fangelsisvist í stað of smárra sekta sem gera slíkt athæfi arðbært að svindla á landsmönnum ítrekað. Annars er þetta bara performativ lausn.

      Þjóðarsátt? Ef spurningin er alltaf smákóngar vs almennt verkafólk þá er aðeins eitt af þessum tveim samfélagsmein sem vill alltaf græða á öllu sem gerist í landinu, stjórna því og sundrar samfélaginu í vaxandi mæli. Fégráðuga batteríið sem krefst meiri viðleiðni með hverri launahækkun og treður sér í raunverulegt hlutverk ríkisstjórnarinnar með ‘og hvað um okkur, hvað græðum við á því?’

    6. SubstanceNaive5642 on

      Til lengri tíma þarf rafvæddar almenningssamgöngur í formi sporvagnakerfis á höfuðborgarsvæðinu.

      En fyrsta skrefið auðvitað er að auka tíðni ferða strætó og fjölga sérakgreinum eins og hægt er og greiða fyrir borgarlínunni.

      Það þarf að ráðast að rót vandans sem er að eldsneyti er stór hluti af útgjöldum margra. Rafbílavæðingin er gott skref en það þarf að ganga lengra í að gera fólk óháðara eldsneyti.

    7. Jæja, um leið og skoðanakannanir fara að sýna eitthvað slæmt þá skiptir ríkisstjórnin yfir í popúlisma. Þetta boðar ekki gott.

    8. veislukostur on

      Bjóst við meiru, neita því ekki. Er þetta í alvörunni nóg til að rétta stöðuna? 

    9. Er hér verið að lækka VSK á eldsneyti til að reyna að stýra verðbólgu niður í 4,69% svo að kjarasamningar losni ekki?

      > **Forsendur endurskoðunar kjarasamninga 1. september 2026**
      >
      > * 12 mánaða verðbólga sé yfir 4,7% eins og hún mælist í ágúst 2026.
      > * Verðlagsforsendur teljast hafa staðist ef verðbólga á tímabilinu mars – ágúst 2026 er 4,4% eða lægri miðað við árshraða.[[1]](https://samtok-atvinnulifsins.cdn.prismic.io/samtok-atvinnulifsins/ZfsIwQmzsfHOGI-__stodugleikasamningurinn-heildarkynning-2024-03-20.pdf)

      Miðað við gildistíma þessara lagabreytinga (1. maí til 31. ágúst) og endurskoðunarákvæði í kjarasamningum liggur það beinlínis fyrir að það sé aðal markmiðið með þessum aðgerðum.

    10. FostudagsPitsa on

      500 milljónir í að fjölga hleðslustöðvum til að berja niður verðbólguna hratt og örugglega…. Úff maður, að þetta sé ekki aprílgabb er ótrúlegt.