Share.

    8 Comments

    1. dansk-reddit-er-lort on

      Hvað finnst ykkur sem eru ennþá búsett á íslandi um þetta?

      Ég flutti til Danmörku fyrir mörgum árum og kom svo ekkert til íslands í meira en áratug, en það breyttist svo síðastliðið haust þar sem ég tók líka dönsku kærustuna með.

      Ég verð að segja að það kom mér mikið á óvart hvernig það er búið að snúa landinu hálfgert á hvolf til þess að reyna að tæma veskið hjá túristum. Við vorum ekki svo lengi á landinu, en okkur tókst þá að fara svona sirka golden circle. Við vorum á bíl og brunuðum á örugglega fimm staði eða eitthvað á einum degi, gullfoss, geysir, osvfr. Í lok dagsins held ég að ég hafi kannski verið búinn að borga 5 þús kall fyrir bílastæði.

      Ég kem aftur til landsins í ágúst þar sem ég tek með mér fleiri dani (sorrí) og við förum hringveginn og þannig drasl, og ég þurfti að útskýra fyrir þeim að við þurfum einfaldlega að hafa budget post sem er “parking at attractions”, sem mér finnst frekar klikk.

      Fyrir utan þetta, þá finnst mér margir staðir vera frekar sálarlausir. Það eru búðir við geysir og gullfoss og það er bara selt eitthvað hallærislegt túrista drasl, mikið af því einhverskonar lúðalegt víkingadrasl.

      æi ég veit ekki.. Kannski er þetta bara sem gerist undir kapítalismanum.

    2. Alveg hættur að geta heimsótt turistaataði a Suðurlandi. Austurland og Vestfirðir enn ok.

      Sammála öðrum ræðumanni þetta er orðið samfélagsmein

    3. Johnny_bubblegum on

      Formaður samtaka ferðamannaþjónustunnar kvartar undan bílastæðunum við alla túristastaðina og segir bílastæðin við túristastaðina *ekki* hluta af ferðamannabransanum heldur nýta sér “hliðaráhrif ferðaþjónustunnar”.

      Svona týpískt kjaftæði eins og venjulega úr ferðaþjónustunni. Bera ekki ábyrgð á neinu slæmu og allt bara gott við iðnaðinn þeirra. Haa landið við Seljalandsfoss þar sem fólk leggur til þess að sjá fossinn? Nei það er ekki hluti af ferðaþjónustunni við fossinn sko…

      Líttu þér nær, Pétur formaður samtaka ferðaþjónustunnar, ef þú hefur áhyggjur af peningaplokki og græðgi gagnvart útlendingum.

    4. Græðgi okkar Íslendinga kristallast í nokkrum einstaklingum og er bein ástæða fyrir flestum vandamálum okkar sem þjóð.

    5. Ef að landeigendur þurfa að leggja í kostnað við að útbúa bílastæði og aðstöðu vegna ágangs ferðamanna á ákveðin svæði finnst mér mjög eðlilegt að rukka gjald fyrir það. Einnig þarf að taka inní myndina að það þarf að þjónusta þessi stæði, t.d moka snjó og tæma rusl og svo framvegis, einhver þarf að borga þann kostnað og það liggur beinast við að þeir sem noti stæðin greiði fyrir það.

      Sem dæmi var ég að spjalla við landeiganda sem að ákvað að setja upp ruslatunnu við tiltölulega lítið sóttan ferðamannastað á norð-austurlandi og hann sagði að í fyrra hafi fallið til rúmlega 4 tonn af rusli og yfir sumarið hafi hann þurft að tæma tunnuna daglega. Sveitafélagið sem betur fer samþykkti að taka við ruslinu honum að kostnaðarlausu en þetta er samt helvíti leiðinleg sjálfboðavinna sem að hann bað enganvegin um sjálfur.

    6. Það má deila um verðlagningu og fyrirkomulag, en það er alveg augljóst að það þarf að vera einhverskonar aðgangsstjórnun að þessum vinsælustu stöðum – það eru takmörk fyrir hve margir geta skoðað Seljalandsfoss á sama tíma áður en upplifun manna af svæðinu verður neikvæð og allt umhverfið niðurtroðið drullusvað.

      Svo er ekkert eðlilegt við það að rútufyrirtæki og aðrir geti rukkað fyrir að skutla túristum milli fallegustu staða landsins án þess að taka nokkra ábyrgð á því álagi sem þessi ferðamannafjöldi veldur á svæðinu.

      Þegar álag er orðið svona mikið vegna ferðamanna er mikilvægt að allir í ferðamannabransanum taki sig saman um að starfa í sátt við heimamenn. Það getur m.a. komið fram í því að bjóða þeim hagstæð verð á ýmissi ferðamannaþjónustu – og með því að bjóða þeim afslátt eða ókeypis aðgang að bílastæðum við ferðamannastaði.

      Það væri ekkert mál að útfæra slíkt ef vilji væri fyrir hendi – t.d. væri hægt að miða við að hvert bílnúmer (sem er ekki skráð á fyrirtæki eða bílaleigur) fái ókeypis aðgang einu sinni á ári að hverju bílastæði. Eða þá bara nota rafræn skilríki til að sanna að maður sé heimamaður með lögheimili á Íslandi.

      Síðan er algjört bull að það megi ekki bjóða Íslendingum önnur kjör heldur en ferðamönnum. Það er nú þegar gert á mörgum stöðum í Evrópu með ýmsum hætti. Það sem er bannað er að mismuna fólki eftir þjóðerni – en með því að segja að afsláttarkjörin séu miðuð við heimamenn (t.d. alla sem eru með lögheimili á Íslandi) þá er ekki verið að mismuna eftir þjóðerni – enda fullt af útlendingum með lögheimili hér.