Share.

    10 Comments

    1. Stutturdreki on

      xB í öðru sæti hjá mér (í mínu sveitarfélagi), merki um að ég þurfi eitthvað að fara að endurskoða lífsviðhorfin mín og forgangsmál.

      Spéz samt af top15 voru bara 2 úr xB en þeir voru samt rankaðir svona hátt. Samfó átti flesta á top15 en lentu í 4. sæti. Líklega reiknað einhvern vegin út frá því hversu mikið viðkomandi voru sammála því sem ég chekkaði í.

    2. Magnað að uppgötva rusl framboð alltaf svona í gegnum þessar kannanir, sem sækja styrki og sjúga aðeins af kerfinu aðdraganda kosninga.

    3. hervararsaga on

      Ég fékk Sjálfstæðisflokkinn, enda myndi ég helst vilja kjósa einhverja sem gera það sem sjallar hafa alltaf lofað en aldrei staðið við. Myndi aldrei kjósa þá.

    4. áhugaverðar niðurstöður úr Reykjavík:

      * Allir flokkar vilja:
      * [Lengri opnunartíma sunds](https://kosningaprof.ruv.is/spurning/lengja-aetti-opnunartima-sundlauga-thott-thad-kosti-sveitarfelog-fe/)
      * [Leggja meira fé í þjónustu við eldri borgara](https://kosningaprof.ruv.is/spurning/sveitarfelog-aettu-ad-verja-meira-fe-i-thjonustu-vid-eldri-borgara/)
      * [Miklubrautargöng](https://kosningaprof.ruv.is/spurning/haetta-a-vid-fyrirhugud-miklubrautargong/)
      * **Enginn** flokkur:
      * Vill [loka fyrir aðgengi almennings að Heiðmörk](https://kosningaprof.ruv.is/spurning/ad-er-rett-ad-takmarka-adgengi-almennings-ad-utivistarsvaedinu-i-heidmork-i-thagu-vatnsverndar/)
      * Vill [einkavæða Orkuveitu Reykjavíkur](https://kosningaprof.ruv.is/spurning/einkavaeda-aetti-orkuveitu-reykjavikur/)
      * Vill [hækka skatta](https://kosningaprof.ruv.is/spurning/hvernig-aettu-skattar-og-gjold-ad-vera-i-sveitarfelaginu-midad-vid-stoduna-i-dag/)
      * Sjálfstæðisflokkurinn [er á móti Borgarlínunni í núverandi mynd](https://kosningaprof.ruv.is/spurning/ljuka-a-vid-borgarlinu-i-theirri-mynd-sem-nuverandi-aform-gera-rad-fyrir/) (og skipar sér í hópi með Góðan Daginn framboðinu, Okkar Borg og Miðflokknum)
      * Einn flokkur vill [beinlínis halda fólki undir fátæktarmörkum](https://kosningaprof.ruv.is/spurning/sveitarfelagid-tharf-ad-auka-fjarhagsadstod-vid-tha-ibua-sem-lifa-undir-fataektarmorkum/) (Sjálfstæðisflokkurinn)
      * Einn flokkur vill [minna fé til að styðja menningarlíf](https://kosningaprof.ruv.is/spurning/verja-aetti-meira-fe-til-ad-stydja-menningarlif-i-sveitarfelaginu/) (Viðreisn)
      * Tveir flokkar [vilja ekki frístundastyrk fyrir eldri borgara](https://kosningaprof.ruv.is/spurning/sveitarfelog-aettu-ad-greida-eldri-borgurum-fristundastyrk/) (Viðreisn nokkuð ósammála og Vinstrið mjög ósammála)
      * Sósíalistaflokkurinn er eini flokkurinn sem er alfarið á móti því að [skylda sveitarfélög skv. lögum að sjá börnum fyrir leikskólavist frá 12 mánaða aldri](https://kosningaprof.ruv.is/spurning/sveitarfelogum-aetti-ad-vera-skylt-ad-logum-ad-sja-bornum-fyrir-leikskolavist-fra-tolf-manada-aldri/). Hann merkir þetta sem “Mjög mikilvægt atriði”.

    5. Westfjordian on

      Ég endaði með Pírata (82%), Samfylkinguna (78%), og Vinstrið (65%).

      En þegar topp 10 fulltrúanna er skoðaður þá er P5, A4, S1… 🤷🏻

    6. Fékk Viðreisn efst, sem meikar sens fyrir hægri sinnaðan úrbanista.