
This seems to be an article that is open to everyone – it is at least open to me so I can throw in a summary if people who can’t read a decent analysis of these follow-up changes in Reykjavík want to read.
https://heimildin.is/grein/26560/hvadan-kemur-fylgid/
Posted by askur

1 Comment
Áhugavert að bæði Viðreisn, og Samfylkingin, bæta við sig á sama tíma og Sjálfstæðisflokkurinn er að taka marktækar prósentur af fyrri kjósendum þeirra til sín – hugsanlega stuðningur eftir framsækni / íhaldssemi grensunum að finna sér betra heimili?
Framsókn hefur enn ekki fundið sér neinn tilgang í Reykjavík þrátt fyrir góðan sigur 2022. Veit ekki hvað maður á að lesa úr yfirlýsingum um að vilja mynda stjórn til “hægri” án frekara samhengis um hvaða ás er verið að tala um.
Raunverulega áhugavert að sjá að “nýr” flokkur Sósíalista er að sækja mikið fylgi frá fyrri stuðningsmönnum Pírata – ég yfirgaf grasrót Pírata fyrir mörgum árum af því það var ekkert pláss fyrir neina róttæka vinstri stefnu í þeim flokk. Það passar því ekki alveg við minn skilning að fylgisfólk þeirra sæki í róttæka vinstri stefnu í gegnum Sósíalistaflokkinn en ég óska félögum mínum til hamingju með allan árangur burt séð frá innri rifrildum.
Það kemur líka fram í greiningunni á fylgi Vinstrisins að þessi klofningur innan Sósíalistaflokksinns er raunverulegur því fylgi Vinstrisins er bókstaflega gamla fylgi Sósíalista fyir þann klofning.
Miðflokkurinn að sækja fylgi frá Sjöllum var alltaf vitað – miðað við að íhaldssamt fólk virðist enn leita í Sjálfstæðisflokkinn þá ætla ég mér að það sé gremjufylgi sem vill stunda gremjupólitík. Það er áhyggjuefni að það sé svo mikil gremja í þjóðfélaginu burt séð frá því hvaða hugmyndir fólk hefur yfir ástæðu hennar – gremja býr ekki til gott væb til samfélagsuppbyggingar.
Svo er áhugavert að sjá hvað mikið af þessu fylgi kemur frá þeim sem ekki kusu í fyrri kosningum en höfðu þó kosningarrétt
* Sjálfstæðisflokkurinn 28%
* Samfylkingin 13%
* Viðreisn 13%
* Vinstrið 12%
* Miðflokkurinn 20%
Mín tilfinning hefur alltaf verið að hægri og íhaldssamir kjósendur skili sér frekar á kjörstað svo þessar tölur koma mér pínulítið á óvart.