Atvik voru með þeim hætti að fundur borgarráðs mánudaginn 27. apríl sl. varð lengri en upphaflega var áætlað og var ákveðið að fresta birtingu ársreikningsins þar til eftir að fundi lyki eða til kl. 13.30. Var birting í Kauphöll tímastillt af regluverði svo að ársreikningurinn birtist kl. 13.30 að staðartíma. Vitneskja um tímasetningu birtingar í Kauphöll var ekki öðrum kunn en þeim er sátu fundinn, auk regluvarðar.
Gögnin voru lögð fyrir fundamenn með trúnaðarmerkingu, líkt og venja er, en einnig lá fyrir trúnaðarbréf frá fjármálastjóra Reykjavíkurborgar til borgarfulltrúa og áheyrnarfulltrúa þar sem ítrekað var að gögnin væru trúnaðarmál og að sá trúnaður skyldi haldast fram að opinberri birtingu þeirra. Það liggur því fyrir að um ólögmæta miðlun upplýsinga var að ræða til Morgunblaðsins, enda birtist frétt mbl.is, þar sem þegar var búið að vinna úr ársreikningnum, á sömu mínútu og ársreikningurinn var birtur í Kauphöll, eða nákvæmlega kl. 13:30.
Eftirfarandi borgarfulltrúar höfðu aðgangsstýrðan aðgang að tilgreindum gögnum fyrir borgarráðsfund þann 27. apríl sl. í gegnum rafræna gagnagátt Reykjavíkurborgar (Saltfisk) og sátu fund borgarráðs sama dag. Auk þeirra höfðu starfsmenn á skrifstofu borgarstjórnar og skrifstofu borgarstjóra og borgarritara aðgang að gögnunum en sátu ekki fund borgarráð að undanskildum þeim er getið er hér að neðan. Þá sátu þeir starfsmenn fjármála- og áhættustýringarsviðs sem stóðu að uppgjöri fundinn auk endurskoðenda. Tekið skal fram að aðilar eru einnig skráðir á innherjarlista Reykjavíkurborgar.
**Borgarstjóri**
Heiða Björg Hilmisdóttir
Róbert Marshall aðstoðarmaður
**Borgarritari**
Þorsteinn Gunnarsson
**Aðalmenn í borgarráði og varamenn**
Alexandra Briem
Dóra Björt Guðjónsdóttir
Einar Þorsteinsson
Hildur Björnsdóttir,
Sanna Magdalena Mörtudóttir
Skúli Helgason
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir.
Ársreikningur Reykjavíkurborgar, ásamt fylgigögnum, er bundinn lögmæltri trúnaðarskyldu og eru auk þess innherjaupplýsingar þar sem Reykjavíkurborg gefur út skuldabréf á skipulögðum verðbréfamarkaði. Ólögmæt miðlun innherjaupplýsinga til þriðja aðila utan starfsskyldna, s.s. blaðamanns, er refsiverð.
Borgarfulltrúar lúta reglum um trúnaðar- og þagnarskyldu í störfum sínum, siðareglum borgarfulltrúa, svo og lögum og reglum sem gilda um starfsskyldur þeirra að öðru leyti, þar með talið lögum og reglum um meðferð innherjaupplýsinga. Sömu reglur gilda um annað starfsfólk sem skráð er innherjar hjá Reykjavíkurborg.
Um framlagningu ársreiknings gilda lög nr. 3/2006 um ársreikninga, með síðari breytingum, sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, ásamt viðeigandi reglugerðum. Um Reykjavíkurborg sem útgefanda skuldabréfa á skipulegum markaði gilda lög nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefanda verðbréfa og flöggunarskyldu auk laga og reglna sem gilda um innherjaupplýsingar og markaðssvik sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, MAR-reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um markaðssvik nr. 596/2014, auk afleiddra laga og reglugerða. Óheimilt er með öllu að afhenda gögn sem lúta trúnaði og eiga undir þau lög og reglur sem hér hafa verið talin upp fyrr en eftir að gögnin hafa verið birt með opinberri birtingu í Kauphöll Íslands.
Það er ekki sjálfstætt vald borgarfulltrúa eða annars starfsfólks að ákveða að afnema trúnað af gögnum sem stjórnsýslan hefur merkt sem slík. Leki á óbirtum ársreikningi fellur undir strangari reglur en almennt trúnaðarbrot og telst undantekningalaust til innherjaupplýsinga ef útgefandinn er með skráð verðbréf á markaði, eins og á við í þessu tilfelli.
Ótalið er svo mikilvægi þess að sýna heilindi og trúverðugleika í allri framkomu fyrir hönd borgarinnar gagnvart ytri aðilum, s.s. fjárfestum og öðrum sem borgin reiðir sig á til fjármögnunar. Jafnræði fjárfesta er þar lykilatriði en með því að leka innherjaupplýsingum er vegið að grundvallarreglunni um að allir markaðsaðilar skuli hafa jafnan aðgang að upplýsingum samtímis.
Leki á fjárhagsgögnum eru markaðssvik sem grafa undan trausti á fjármálakerfinu og eru alvarlegt brot á siðareglum. Hefur framangreint atvik verið tilkynnt til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar og endurskoðunarnefndar. Er það lagt í þeirra hendur að bregðast við með viðeigandi hætti.
4 Comments
Við erum að tala um sveitarfélag en ekki hlutafélag á markaði. Að tala um innherjaupplýsingar í þessu máli er stormur í vatnsglasi.
**[Bréf regluvarðar Reykjavíkurborgar – meðhöndlun trúnaðargagna](https://fundur.reykjavik.is/sites/default/files/agenda-items/Bre%CC%81f%20regluvar%C3%B0ar%20Reykjav%C3%ADkurborgar_me%C3%B0h%C3%B6ndlun%20tr%C3%BAna%C3%B0argagna_N%C3%BDtt%20-%20%C3%B3tr.pdf)**
Reykjavík, 5. maí 2026 – FAS22020050
Tilefni þessa bréfs er að upplýsa borgarráð um alvarlegan gagnaleka sem varð þann 27. apríl sl. á ársreikningi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 og tengist frétt sem [birt var á fréttaveitu mbl.is](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/04/27/rekstur_borgarinnar_neikvaedur_um_5_3_milljarda/) kl. 13.30 með öllum helstu upplýsingum og lykiltölum ársreikningsins.
Atvik voru með þeim hætti að fundur borgarráðs mánudaginn 27. apríl sl. varð lengri en upphaflega var áætlað og var ákveðið að fresta birtingu ársreikningsins þar til eftir að fundi lyki eða til kl. 13.30. Var birting í Kauphöll tímastillt af regluverði svo að ársreikningurinn birtist kl. 13.30 að staðartíma. Vitneskja um tímasetningu birtingar í Kauphöll var ekki öðrum kunn en þeim er sátu fundinn, auk regluvarðar.
Gögnin voru lögð fyrir fundamenn með trúnaðarmerkingu, líkt og venja er, en einnig lá fyrir trúnaðarbréf frá fjármálastjóra Reykjavíkurborgar til borgarfulltrúa og áheyrnarfulltrúa þar sem ítrekað var að gögnin væru trúnaðarmál og að sá trúnaður skyldi haldast fram að opinberri birtingu þeirra. Það liggur því fyrir að um ólögmæta miðlun upplýsinga var að ræða til Morgunblaðsins, enda birtist frétt mbl.is, þar sem þegar var búið að vinna úr ársreikningnum, á sömu mínútu og ársreikningurinn var birtur í Kauphöll, eða nákvæmlega kl. 13:30.
Eftirfarandi borgarfulltrúar höfðu aðgangsstýrðan aðgang að tilgreindum gögnum fyrir borgarráðsfund þann 27. apríl sl. í gegnum rafræna gagnagátt Reykjavíkurborgar (Saltfisk) og sátu fund borgarráðs sama dag. Auk þeirra höfðu starfsmenn á skrifstofu borgarstjórnar og skrifstofu borgarstjóra og borgarritara aðgang að gögnunum en sátu ekki fund borgarráð að undanskildum þeim er getið er hér að neðan. Þá sátu þeir starfsmenn fjármála- og áhættustýringarsviðs sem stóðu að uppgjöri fundinn auk endurskoðenda. Tekið skal fram að aðilar eru einnig skráðir á innherjarlista Reykjavíkurborgar.
**Borgarstjóri**
Heiða Björg Hilmisdóttir
Róbert Marshall aðstoðarmaður
**Borgarritari**
Þorsteinn Gunnarsson
**Aðalmenn í borgarráði og varamenn**
Alexandra Briem
Dóra Björt Guðjónsdóttir
Einar Þorsteinsson
Hildur Björnsdóttir,
Sanna Magdalena Mörtudóttir
Skúli Helgason
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir.
Helga Þórðardóttir
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir
Kjartan Magnússon
Líf Magneudóttir
**Skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjórnar**
Helga Björk Laxdal
Heimir Snær Guðmundsson (umsjón með fundi borgarráðs)
Ársreikningur Reykjavíkurborgar, ásamt fylgigögnum, er bundinn lögmæltri trúnaðarskyldu og eru auk þess innherjaupplýsingar þar sem Reykjavíkurborg gefur út skuldabréf á skipulögðum verðbréfamarkaði. Ólögmæt miðlun innherjaupplýsinga til þriðja aðila utan starfsskyldna, s.s. blaðamanns, er refsiverð.
Borgarfulltrúar lúta reglum um trúnaðar- og þagnarskyldu í störfum sínum, siðareglum borgarfulltrúa, svo og lögum og reglum sem gilda um starfsskyldur þeirra að öðru leyti, þar með talið lögum og reglum um meðferð innherjaupplýsinga. Sömu reglur gilda um annað starfsfólk sem skráð er innherjar hjá Reykjavíkurborg.
Um framlagningu ársreiknings gilda lög nr. 3/2006 um ársreikninga, með síðari breytingum, sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, ásamt viðeigandi reglugerðum. Um Reykjavíkurborg sem útgefanda skuldabréfa á skipulegum markaði gilda lög nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefanda verðbréfa og flöggunarskyldu auk laga og reglna sem gilda um innherjaupplýsingar og markaðssvik sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, MAR-reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um markaðssvik nr. 596/2014, auk afleiddra laga og reglugerða. Óheimilt er með öllu að afhenda gögn sem lúta trúnaði og eiga undir þau lög og reglur sem hér hafa verið talin upp fyrr en eftir að gögnin hafa verið birt með opinberri birtingu í Kauphöll Íslands.
Það er ekki sjálfstætt vald borgarfulltrúa eða annars starfsfólks að ákveða að afnema trúnað af gögnum sem stjórnsýslan hefur merkt sem slík. Leki á óbirtum ársreikningi fellur undir strangari reglur en almennt trúnaðarbrot og telst undantekningalaust til innherjaupplýsinga ef útgefandinn er með skráð verðbréf á markaði, eins og á við í þessu tilfelli.
Ótalið er svo mikilvægi þess að sýna heilindi og trúverðugleika í allri framkomu fyrir hönd borgarinnar gagnvart ytri aðilum, s.s. fjárfestum og öðrum sem borgin reiðir sig á til fjármögnunar. Jafnræði fjárfesta er þar lykilatriði en með því að leka innherjaupplýsingum er vegið að grundvallarreglunni um að allir markaðsaðilar skuli hafa jafnan aðgang að upplýsingum samtímis.
Leki á fjárhagsgögnum eru markaðssvik sem grafa undan trausti á fjármálakerfinu og eru alvarlegt brot á siðareglum. Hefur framangreint atvik verið tilkynnt til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar og endurskoðunarnefndar. Er það lagt í þeirra hendur að bregðast við með viðeigandi hætti.
Virðingarfyllst,
Ólöf Marín Úlfarsdóttir
*Regluvörður Reykjavíkurborgar*
Þetta er einhvernveginn Degi að kenna
Sagði einhver Kjartan Magnússon?