
“Skorri Mánasson” said to suffer from “source amnesia” – Vísir
https://www.visir.is/g/20262883263d/-skorri-manasson-sagdur-thjast-af-source-amnesia?fbclid=IwdGRjcARxgOJjbGNrBHF_-2V4dG4DYWVtAjExAHNydGMGYXBwX2lkDDM1MDY4NTUzMTcyOAABHmc_k5-TxEiDjdR4TtvyrCCN1bmQGzl7sIWoY5oC2-Rz2LbPbaehQ7lMTqTw_aem_kWYdS5ED03SSC-qKLm6-QA
Posted by icelandicpotatosalad

9 Comments
Er það eigandi Skorradals?
Þessar spurningar hjá Jakobi Bjarna eru voðalega eitthvað reyna-að-hanka-þig.
Þeir sem ýta sko alls ekki undir menningarstríð halda áfram að ýta undir menningarstríð. Glæsilegt skot í fótinn👍 þetta mun bara gera Snorrana þarna úti háværari.
Þegar ég var í háskólanum fengu allir flokkar að heyra það og stjórnmálamenn líka og reynt að tengja námsefnið við málefni líðandi stundar.
En það kemur ekki á óvart hverjir væla hér eins og þetta þekkist ekki…
Þetta var nú frekar algengt í háskólanum á sínum tíma. Oftast voru þetta bara einhverjir kennarar að fíflast sem voru að reyna að semja sniðugar spurningar. En Snorri er að sjálfsögðu fylgjandi málfrelsi og móðgast því ekki yfir svona smáræði.
það gerir fólki sem þjáist af miklu minnisleysi óleik að kenna þessa nálgun á hugtakinu í þroskasálfræði við þann pólitíska óheiðarleika sem Snorri stundar, það býr til hugrenningatengsl á milli slíkra skjólstæðinga og vísvitandi óheiðarleika stjórnmálamanns í annarlegum tilgangi
minnisleysið sem er verið að spyrja um í prófinu er raunverulegt fyrirbæri og á sér sálfélagslegar orsakir, ekki pólitískar
Skorri Mánasson er væntanlega ekkert [minnislaus eftir áföll, höfuðhögg, af geðrænum eða vefrænum orsökum](https://en.wikipedia.org/wiki/Source_amnesia#Causes); hann hirðir bara ekki um að kynna sér gögn almennilega, að kynna sér almennileg gögn sem hann getur vísað til svo sómi sé af málflutningnum, eða að geta til uppruna yfir höfuð. ástæðan er ekki minnisleysi heldur pólitískur hentugleiki
Veit ekki afhverju en “Skorri Mánasson” gaf mér mental image af Snorra Másson með plat yfirvaraskegg, einglyrni og pípuhatt
þarf ekki að athuga hvort það sé í lagi með Jakob Bjarnar? Því þetta rosalega stretch hjá honum getur ekki hafa ekki tekið hann úr lið einhvern veginn. Karlinn er orðinn gamall og þá er hætt við svoleiðis.
Þetta er augljóslega skopgerð af nafni Snorra en ég er löngu hættur að leika fallega við þetta kúltúrstríðs pakk sem kastar grjóti og biðst aldrei afsökunnar.