Share.

    12 Comments

    1. Equivalent_Day_4078 on

      Þessi köttur og mús leikur er orðinn svo þreyttur. Segið bara að þið séuð sammála Sverri og að regnbogafáninn sé “alnæmisfáninn”. Ég er svo þreyttur á heigulskap þeirra að aldrei vera með skoðanir sínar hreint út, hvorki fordæmt né sammælst heldur frekar þessi plausible deniability leikur.

      Það er búið að spila þennan leik í lengur en 10 ár núna og það sem pirrar mig alltaf er að ég fæ alltaf sömu helvítis ræðuna að við séum ofstækisfull gegn fólki sem er einungis “ósammála” okkur. Nei ég nenni þessu ekki bulli lengur, Miðflokkurinn fordæmir ekki það að vilja lemja “libba” svo ég geri ráð fyrir að það er þeirra innri löngun.

    2. reasonably_insane on

      Magnað hvað þessir menn skammast sín fyrir skoðanir sínar. Ég meina þeir ættu að gera það en skrítið að þeir geri það

    3. Johnny_bubblegum on

      Þetta er allt svo fyrirsjáanlegt og auðvelt og að Rúv hafi byrjað svona en svo leyft honum Ara að blaðra og blaðra er lélegt af Rúv…

      Þeim er alltaf leyft að blaðra sig frá þvi að svara raunverulega.

    4. Ég skil engan vegin þessa heift.

      Það er úr nógu af moða varðandi heimskupör ungra Sjálfstæðismanna í gegnum tíðina. Ungliðar í Vinstri Grænum skreyttu köku með hamri og sigð um árið. Félagsmenn í Sósíalistaflokknum lofsama Xi Jinping og Kim Jong Un og sumir eru grjótharðir Pútínistar. En þetta eru heimskupör félagsmanna en ekki stefna flokkana.

      Eins langt frá því og ég er að tala máli Miðflokksins þá fannst mér taktlaust af RÚV af hefja leika á að spyrja Ara út í þetta á meðan aðrir oddvitar fengu léttar spurningar og heiðarlegt tækifæri til að kynna sína stefnu (meir að segja rugludallaflokkarnir.)

      Ari er ekki einu sinni í forsvari fyrir þennan flokk heldur frambjóðandi í sveitastjórnarkosningum.

      Ómálefnalegt hjá RÚV 👎

    5. Þegar Miðflokkurinn fær á sig réttmæta gagnrýni fyrir forneskjulegar skoðanir sínar þá segir Miðflokkurinn: “Djöfulsins snjókorn eruð þið, við erum _bara_ að spyrja spurninga!”

      En þegar fjölmiðill spyr spurninga varðandi ummæli varaformanns og ræðumanns sem Miðflokkurinn sjálfur bauð að halda ræðu þá öskra Miðflokksmenn: “HVERNIG DIRFIST ÞIÐ AÐ SPYRJA SPURNINGA! OFSÓKNIR! OFSÓKNIR!”

    6. Þetta er alveg rétt hjá honu , byrjaði vel. “Afhverju á fólk að treysta þér” spurningar fyrir frambjóðendur. Mjög fínt, svo búmm allt önnur spurning til Ara. Alveg út úr dúr. Enginn annar fékk svona “skandal” spurningu beint frá RÚV. Úff, skemmir meira en að hjálpa held ég..