Now you hear of a song like this every now and then. Þeas that the rule of law goes beyond the framework of the law when it suits. A question about whether there needs to be any awareness raising when it comes to the rights of citizens vis-à-vis the police?

    https://www.visir.is/g/20262886041d/ekkert-sem-bannar-upp-tokur-af-log-reglu-ad-gerdum-a-al-manna-faeri

    Posted by gerningur

    Share.

    6 Comments

    1. Af eigin reynslu – réttindi þín gagnvart lögreglunni eru eftir henntisemi lögreglunnar og um leið og hún heldur að þú hafir eitthvað á hana þá verður þér það fljótt ljóst að nú ert þú einhvernvegin í vandræðum ekki lögreglan sjálf, eða stofnunin.

      Þessi reynsla er samt meira en 20 ára gömul og hugsanlega hefur allt breyst – en þessi fréttaumfjöllun minnti mig á hana og af hverju mér líður alltaf illa í kringum íslenskar lögreglur og á mjög erfitt með fólk sem heldur að íslenska lögreglan hljóti að vera kærleikurinn einn saman. Ég get samt ekki farið út í smáatriði af því það væri mögulegt að tengja þau við persónu mína, og ég hef engan áhuga á frekari athygli frá þessari stofnun núna eða þá.

      En þar sem ég hef mína reynslu þá dettur mér eiginlega ekkert annað í hug en slæmar ástæður fyrir þessari ógnandi hegðun lögreglunnar til að eyða mögulegum sönnungargögnum. Skortur á trúverðugleika er ein augljós afleiðing þess að brjóta niður traust milli borgara og löggæslunar með því að neita öllu raunverulegu aðhaldi og ábyrgð og snúa því upp í hugsanlega ólöglegar hótanir gagnvart samborgurum okkar.

    2. Ef við gerum ráð fyrir því svona einu sinni á netinu í gagnrýni á lögregluna að hún hafi verið að vinna af góðum vilja: þá er um að ræða einstakling í ójafnvægi, brjálaður og æstur, ógnandi, hellir bensíni yfir sig sjálfur og kveikir í sér. Mætti hugsa að hér væri um andlega veikan einstakling að ræða.

      Lögreglan á að vera með búkmyndavelar svo upptaka af atburðinum ætti ekki að vera vandamál með tilliti til rannsóknar. Sé ekki öðruvísi en að lögreglan var að koma í veg fyrir dreifingu mannsins vegna.

      Edit; Adrenalín og aðstæður verða líklega til þess að viðbrögðin og samskipti urðu ógnandi þó það hafi ekki endilega átt að verða svo.

      Edit2; margir sannfærðir um að tazerinn hafi orðið til þess að kviknaði í manninum
      – [“einstaklingur í andlegu ójafnvægi er sagður hafa kveikt í sér”](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/05/18/segist_hafa_eytt_myndbandi_eftir_hotanir_logreglu/)
      – [„Þetta var gert til þess að gæta hagsmuna þess sem var þarna í miklu ójafnvægi og án fata.“](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/05/18/myndefni_eytt_til_ad_gaeta_hagsmuna_mannsins/)

    3. Held að þetta eigi við betur í þessu máli:

      > 228. gr. almennra hegningarlaga

      > Hver sem brýtur gegn friðhelgi einkalífs annars með því að hnýsast í, útbúa, afla, afrita, sýna, skýra frá, birta eða dreifa í heimildarleysi skjölum, gögnum, myndefni, upplýsingum eða sambærilegu efni um einkamálefni viðkomandi, hvort heldur sem er á stafrænu eða hliðrænu formi, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári, enda sé háttsemin til þess fallin að valda brotaþola tjóni.] 1)

      > Sömu refsingu varðar það að ónýta eða skjóta undan einkagögnum þeim, sem nefnd eru í 1. mgr.

      > Sektum eða [fangelsi] 2) allt að 3 mánuðum skal sá sæta, sem hnýsist í hirslur annars manns án nægilegra ástæðna

      Síðan má deila um tilgang upptökunnar.

    4. Skiptir svosem ekki máli en mín skoðun á löggum er mjög lituð af barnæsku minni. Í eitt sinn kom lögregla á heimili mitt þegar ég var um 9 ára, braut upp hurðina án dómaraheimildar og framdi fleiri brot á heimili mínu. Faðir minn tók það upp og póstaði á Youtube.
      Stuttu seinna kom lögreglan aftur og hótaði honum að ef hann tæki ekki myndbandið niður þá myndu þeir (lögreglan) taka börnin hans (mig og systkini) og koma okkur í varanlegt fóstur. Að hann fengi aldrei aftur að sjá okkur.

      Nú ætla ég ekki að halda fram að lögreglan kom heim til mín af ástæðulausu, en hegðun þeirra var trámatesarandi fyrir börn og líka ólögleg. Pabbi því miður tók myndbandið niður frekar en að taka slaginn, en ég skil hann vel í þeirri ákvörðun.

    5. StefanOrvarSigmundss on

      Ég held að það sé ósköp algengt að lögregla brjóti á fólki. Í flestum tilfellum gerir fólk ekkert í því og við heyrum aldrei af því. Það er ekki langt síðan að ég fylgdist með þremur lögreglumönnum ræða sín á milli hvort þær ættu að framkvæma húsleit eða að bíða eftir úrskurði dómara. Ég held að brot á stjórnarskrárvörðum réttindum séu frekar hversdagsleg hjá þeim. Afleiðingar virðast mjög sjaldgæfar.