I’m so terribly lonely,, it’s just become too much. I don’t know how long I can do this yet,,,, I don’t see anyone, no friends. How can people do this for so long…. HELP-|-
Ég hef gengið í gegnum þetta, verið að drukkna úr einmanaleika og fundist ég standa í miðri karúsellu þar sem aðrir svífa fram hjá, að skemmta sér og lifa lífinu. Þér er velkomið að senda mér skilaboð ef þú vilt spjalla 🩷
helgadottiir on
Hafðu samband við píeta samtökin 🩷 lífið verður bjartara, ég lofa
coldbeerisgood on
Það er alltaf von ♥️
Ég er óendanlega þakklátur fyrir að ég leitaði mér hjálpar við þunglyndi fyrir 12 árum og að ég sé ennþá hér ti staðar.
Þetta er erfitt og flókið en þú getur þetta. Þetta getur allt saman orðið betra. Ég lofa 🙏
Ég styð heilshugar við ráð annara hér um að leita aðstoðar við þunglyndi. Engin skömm í því að fá hjálp. Það getur sérstaklega hjálpað við fyrsta skrefið sem er að koma sér út um dyrnar sínar. Til viðbótar við það mæli ég með að þú finnir þér eitthvað áhugamál sem kemur þér í samskipti við annað fólk. Íþróttaiðkun hentar sumum. Borðspil henta öðrum. Það er hægt að fara í kór. Alls konar félagsstarfsemi er í boði sem kemur þér í samband við fólk og býr til aðstæður þar sem er auðveldara að eignast vini. Ég veit ekkert um kór eða íþróttir en nexus er með mjög tíða spilaviðburði og þá sækja fullt af fólki sem margt þekkir vandamálið þitt og hefur upplifað einangrun og einmanaleika sjálft.
SicklyPiglet on
Ég hef sjálfur gengið í gegnum nokkur þunglyndistímabil þar sem ég hugsaðu um að stytta aldur en það er hægt að komast í gegnum þetta og lífið verður betra með aldrinum. Það eru til hópar fyrir alls skyns áhugamál, góður staður að byrja þar til þess að kynnast einhverjum?
5 Comments
Ég hef gengið í gegnum þetta, verið að drukkna úr einmanaleika og fundist ég standa í miðri karúsellu þar sem aðrir svífa fram hjá, að skemmta sér og lifa lífinu. Þér er velkomið að senda mér skilaboð ef þú vilt spjalla 🩷
Hafðu samband við píeta samtökin 🩷 lífið verður bjartara, ég lofa
Það er alltaf von ♥️
Ég er óendanlega þakklátur fyrir að ég leitaði mér hjálpar við þunglyndi fyrir 12 árum og að ég sé ennþá hér ti staðar.
Þetta er erfitt og flókið en þú getur þetta. Þetta getur allt saman orðið betra. Ég lofa 🙏
https://preview.redd.it/m616p1upwb4h1.png?width=1080&format=png&auto=webp&s=a88057179769c07da57a5a92b1af1d3ffa5ffa76