
If only there had been a group of people who warned at the time that ignoring the results of the referendum on October 20, 2012 would have consequences…
Market
But it’s great to hear from the naysayers themselves that if the result is No on August 29, that their government is allowed to ignore those results.
It is the case that coming up with such poorly thought out nonsense as SÁA is doing here is always a double-edged sword.
https://heimildin.is/grein/26697/nyja-stjornarskrain-fordaemi-um-hvernig-hunsa-megi-thjodaratkvaedagreidslu/
Posted by Steinherji

3 Comments
Bíddu, er Sigríður Á. Andersen að kvarta yfir því að þjóðaratkvæðisgreiðsla var hunsuð af ÞKG og sjöllum.. á meðan hún sjálf sat á sama þingi, í sama flokki, á sama tíma og var sjálf að hunsa sömu niðurstöðu?
Talandi um að skjóta sig í fótinn.
https://www.althingi.is/altext/pdf/157/s/1245.pdf
Þetta er heldur skýrt og skorinort annað en kosning um tillögur stjórnlagaráðs: https://www.althingi.is/altext/140/s/1407.html
Kosningin um aðildarviðræður við ESB er um hvort það eigi, ekki hvort maður vilji. Þessi samanburður er því í besta falli heimskulegur því stjórnarskráarkosningin var viljandi orðuð þannig að alþingismenn gátu svona hálffalið sig bakvið lagabókstafinn og dregið málið á langinn.
Síðan þarf Sigríður að hætta að anda að sér eigin freti og átta sig á því að ef niðurstaða kosningarinnar er nei þá er enginn möguleiki á viðræðum. Heldur einhver heilvita maður að ESB ætli í viðræður við þjóð sem hefur kosið að fara ekki í viðræður? Haldiði að stjórnin lífi það af að senda einhverja sendinefnd út sem hefur ekkert pólítískt né lýðræðislegt umboð til að semja?
Þetta er vitleysan sem leysist úr leysingi þegar Sigríður Andersen og Sigmundur Davíð eru saman komin í loftþéttan klefa að taka upp eitthvað efni. Koldíoxíð-eitrun í fremsta gæðaflokki.
Það má þó auðvitað setja inn ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur í stjórnarskrá, að helmingur manna þurfi að mæta á staðinn og kjósa. Bara uppá framtíðina að gera þó það séu allar líkur á því að meirihluti kjósanda muni mæta og kjósa um þetta mál.
Þar sem núverandi ríkisstjórn segir að aðildarviðræðum hafi ekki verið hætt þá sé ég lítið því til fyrirstöðu að næsta ríkisstjórn sem vill ekki ganga í ESB geti líka “ekki hætt” aðildarviðræðunum þannig að við verðum aftur komin í núverandi ástand.